fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fókus

Bonnie Blue í bobba

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 18. mars 2026 22:30

Bonnie Blue komst í kast við lögin.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Klámleikkonan breska Bonnie Blue hefur verið ákærð fyrir brot á velsæmisreglu. Hún olli óskunda fyrir framan indónesíska sendiráðið í London.

Hin 26 ára Bonnie, eða Tia Bollinger eins og hún heitir réttu nafni, komst í heimsfréttirnar fyrir það að hafa sængað hjá eitt þúsund karlmönnum á einum sólarhring fyrir framan myndavélar. Síðan þá hefur hún svo til stanslaust verið á blaðsíðum slúðurblaðanna. Yfirleitt fyrir eitthvað miður jákvætt.

Að sögn talsmanns lögreglunnar í London þá var fröken Bollinger birt ákæra á mánudag, 16. mars, með pósti og er henni gert að mæta fyrir dómara þann 22. apríl næstkomandi.

Sjá einnig:

Karlmaður ætlar að slá met Bonnie Blue – „Get ég tekið þá alla?“

Er hún sökuð um að hafa sýnt af sér kynferðislega tilburði við sendiráð Indónesíu með indónesíska fánann á lofti. Það er að hún hafi þóst veita munngælur.

Bonnie var handtekin í Balí í Indónesíu í desember síðastliðnum í leigðu upptökuveri en grunur lék á að hún væri þar að taka upp klámmynd. Rannsókn fór fram á myndefni og ákvað lögreglan í Indónesíu að ákæra hana ekki. Hafi myndefnið sem fannst ekki verið ætlað til almennrar dreifingar heldur til einkanota.

Hins vegar var hún fundin sek um að hafa komið til Indónesíu á fölskum forsendum. Það er að hún hafi tilkynnt á flugvellinum að hún væri að koma í viðskiptalegum erindum.

Bonnie hélt á fána Indónesíu við sendiráðið og þóttist veita munngælur. Skjáskot/TikTok
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 6 dögum

Patrekur Jamie ætlar að kjósa flokkinn sem er tilbúinn að lofa þessu – „Hvað er að frétta?“

Patrekur Jamie ætlar að kjósa flokkinn sem er tilbúinn að lofa þessu – „Hvað er að frétta?“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Setur í ljósi sögunnar spurningarmerki við yfirlýsingu RÚV – „Hefur hvorki fjallað um málið né birt tilkynningu“

Setur í ljósi sögunnar spurningarmerki við yfirlýsingu RÚV – „Hefur hvorki fjallað um málið né birt tilkynningu“