

„Ég ætla að fá að ranta yfir einu, en ég sem sagt var á fótboltamóti með syni mínum sem er by the way fjögurra ára og verðlaunin voru cheetos-poki og dós af appelsíni,“ segir móðirin, Lára Gunnarsdóttir, í myndbandinu.
„Í fyrsta lagi finnst mér þetta ekkert eiga heima á íþróttaviðburði og hvað þá einhverjum guttum sem eru fjögurra ára. Er þetta bara eðlilegt? Mér finnst það ekki,“ sagði Lára og gagnrýndi einnig að sjoppa hefði verið á staðnum þar sem mikið af nammi var í boði.
„Mér finnst þetta bara ekki meika sens, þarf þetta að vera? Getum við ekki bara haft banana og kaffi og djús. Er það ekki alveg nóg? Mér finnst bara ef þið tímið ekki að splæsa í litlar medalíur getum við ekki bara sleppt þessu,“ spurði hún.
Myndbandið hefur vakið gríðarlega athygli og hafa vel yfir 40 þúsund horft á það. Óhætt er að segja að athugasemdirnar séu flestar á einn veg.
„Nei halló þetta er galið!!”
„Þetta er ekki í lagi“
„Sammála“
„Nei hættu nú?!!!!“
@laragunnarss Getum við plís gert betur? Skil ekki að þetta sé bara i lagi? #fyrirþig #íslensktiktok ♬ original sound – laragunnarss