

Kidman þurfti ekki langan umhugsunarfrest því hún rifjaði upp atvik frá árinu 2017 þegar hún var í tökum fyrir þáttaröðina Big Little Lies. Þá átti hún að kyssa mótleikara sinn, hjartaknúsarann Alexander Skarsgård.
Kidman rifjaði upp að skömmu áður en atriðið var tekið upp hafi hún tekið eftir því að Skarsgård var að borða falafel-samloku. Kidman er ekki vön því að liggja á skoðunum sínum og segist hún hafa gengið að leikaranum og sagt honum að láta samlokuna niður.
„Ég á að vera skotin í þér og þarf að kyssa þig – leggðu samlokuna frá þér núna,“ segist hún hafa sagt. „Ég er ekki viss um að hann hafi borðað falafel aftur eftir þetta,“ sagði leikkonan, en fyrir þessar sakir var kossinn ekki ýkja merkilegur.
Kidman segist ekki þola andfýlu. „Þetta er samningsbrot fyrir mér. Þú getur verið fallegasti og dásamlegasti maður sem til er, en ef þú kæmir til mín með andfýlu, þá væri svarið bara nei. Þú gætir ekki boðið mér nægan pening.“
Kidman bætti einnig við að henni hafi að hluta til verið létt þegar hún missti tímabundið lyktarskynið eftir að hafa smitast af COVID. „Loksins var ég frjáls,“ sagði hún.
Hún nefndi svo að lokum hvaða fræga manneskja lyktaði best. „Rihanna,“ sagði hún.