fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Fókus

Jónas Sen fór á tónleika í Hörpu og var ekki hrifinn – „Keisarinn var allsber“

Fókus
Föstudaginn 13. mars 2026 07:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jónas Sen tónlistargagnrýnandi Vísis er ekki vanur því að liggja á skoðunum sínum og það gerir hann svo sannarlega ekki í gagnrýni um stórtónleika Plácido Domingo sem fram fóru í Hörpu á mánudagskvöld.

„Maður spyr sig hreinlega: Til hvers er óperugoðsögn á níræðisaldri að leggja leið sína til Íslands til að staulast í gegnum aríur sem áður runnu af fingrum fram,“ spyr Jónas í upphafi gagnrýni sinnar sem birtist á vef Vísis í morgun og bætir við að fyrir hann hafi tónleikarnir ekki verið sérlega skemmtilegir.

Spænski óperusöngvarinn, sem er orðinn 85 ára, hélt tónleikana ásamt sópransöngkonunni Juliana Grigoryan og píanóleikaranum James Vaughan.

„Ég ætla að vera heiðarlegur og segja hlutina eins og þeir hljómuðu í salnum: Út frá því sem heyrðist í Eldborg má segja að Plácido Domingo sé búinn að syngja sitt síðasta. Hann reynir nú að kalla sig baritón til að hylja þá augljósu staðreynd að efra tónsviðið er farið fyrir fullt og allt, en jafnvel í dýpri tónunum vantar allan kjarna, alla fyllingu. Röddin hljómaði eins og upphitaður kaffibolli frá því í fyrradag. Útlínurnar eru þarna, en bragðið er farið,“ segir hann meðal annars.

Hann segir enn fremur að skuggi ásakana frá fjölmörgum konum um valdníðslu og áreitni tónlistarmannsins hafi legið yfir sviðinu. Þessi evrópski endurkomutúr hafi virst fremur vera PR-aðgerð en listrænn sigur.

Tónleikarnir voru þó ekki alsæmir að mati Jónasar og gefur hann þeim tvær stjörnur. Er það einkum vegna frammistöðu Juliönu sem hann segir að hafi verið stórbrotin og frábær. Þá hafi píanóleikur Vaughan tekist vel. En Domingo vakti ekki hrifningu hjá Jónasi.

„Keisarinn var allsber; miðað við það sem heyrðist í Eldborg hefði hann betur sest í helgan stein. Grigoryan á hins vegar framtíðina fyrir sér.“

Hér má lesa gagnrýni hans í heild sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 6 dögum

Afhjúpar dónalegustu stjörnurnar sem hún hefur unnið með

Afhjúpar dónalegustu stjörnurnar sem hún hefur unnið með
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Manstu þegar maður gat klárað Facebook? þú áttir bara 3 Facebook metra ólesna“

„Manstu þegar maður gat klárað Facebook? þú áttir bara 3 Facebook metra ólesna“
Fókus
Fyrir 1 viku

„Þetta segir mér það að treysta ekki fólki nema ég gjörþekki það“

„Þetta segir mér það að treysta ekki fólki nema ég gjörþekki það“
Fókus
Fyrir 1 viku

Íslensku lögin sem Laufey segir að allir verði að hlusta á

Íslensku lögin sem Laufey segir að allir verði að hlusta á