

Ragnhildur er sálfræðingur með áherslu á heilsusálfræði og lærður einkaþjálfari.
Sjá einnig: Ragnhildur fer yfir kosti og galla Ozempic – Segir að lyfin séu ekki fyrir þennan hóp
„Mörg labba útúr rækt löðursveitt eins og grís á teini eftir þolæfingar eða hringþjálfun með engum hvíldum, tætt og tjásuð með kortisólmarineraðan skrokk og halda ranglega að það sé eina leiðin til að brenna fitu.
En með því að rífa í járn af krafti, og senda þannig skilaboð um að vöðvarnir kalli út aukamannskap til að byggja nýjan vef, taka góðar hvíldir milli setta til að geta rifið jafn hart aftur. Eftir að þú refsar lóðunum er líkaminn í prótínmyndun, hreinsun á mjólkursýru og vöðvabyggjandi fasa í 24-72 tíma. Sem þýðir hærri grunnbrennsla næstu í 2-3 daga á eftir. Sem gerist ekki eftir svitastorkna tíma þar sem við hömumst eins og grís á teini í 45-60 mínútur sleitulaust á miðlungsákefð,“ segir Ragnhildur.
Hún vill sjá fólk einbeita sér frekar að því að borða og byggja upp vöðva frekar en að svelta sig og svitna á endalausum þolæfingum. „Æfa til að verða sterkari og betri,“ segir hún.
„Með því að einblína á lyftingar æfirðu og fóðrar skrokkinn fyrir hámarks frammistöðu til að verða stærri og sterkari.“
Hún telur upp nokkur atriði máli sínu til stuðnings:
Að lokum segir hún: „Þegar við breytum hugarfari frá endalausu ströggli að verða minni og mjórri yfir í að æfa til að verða stærri, sterkari og betri er algjör leikbreytir fyrir heilsu, sjálfstraust og sjálfsöryggi.“
Sjá einnig: Ragnhildur segir að þetta sé ekki eina leiðin til að borða hollt – Prófaðu þessa nýju nálgun í staðinn
Lestu allan pistilinn í heild sinni hér að neðan.