fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Fókus

Tíu dýrustu einbýlishúsin á Íslandi í dag

Fókus
Sunnudaginn 14. júní 2026 10:30

Verðið á dýrustu einbýlishúsunum er frá 300 milljónum króna og allt upp í 690 milljónir. Samsett mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Marga dreymir um að eignast stórt og gott einbýlishús. Síðustu helgi tók DV saman lista yfir þau tíu ódýrustu sem eru til sölu á Íslandi í dag, verðið á þeim var á bilinu 11 til 30 milljónir króna og staðsetningin fjarri höfuðborgarsvæðinu. Hér gefur að líta þau tíu dýrustu sem eru til sölu á Íslandi í dag.

 

Skeljatangi, Reykjavík

Ásett verð: 690 milljónir

Fermetrar: 547

Byggingarár: 2008

Húsið stendur á 1.258 fermetra sjávarlóð innst í rólegri botnlangagötu með útsýni að Bessastöðum. Fjögur svefnherbergi og þrjú baðherbergi. Á efri hæð er hjónasvíta sem spannar alla hæðina. Á neðstu hæð er spa-rými með niðurgröfnum sérhönnuðum heitum potti og setusvæði, þar er einnig líkamsræktarsalur með innbyggðu hljóðkerfi. Við austurhlið hússins er pallur með heitum potti og útisturtu. Á neðri hæðinni er sérstakt tæknirými fyrir búnað hússins.

Hjörleifur Stefánsson arkitekt hannaði húsið og hefur það nokkrum sinnum ratað í fréttir en eigandinn er Margrét Ásgeirsdóttir læknir og fjárfestir.

Sjá nánar

 

Skólavörðustígur, Reykjavík

Ásett verð: 495 milljónir

Fermetrar: 275

Byggingarár: 1923

Húsið er teiknað af Guðjóni Samúelssyni arkitekt og fyrrverandi húsameistara ríkisins. Alls ellefu herbergi, ellefu baðherbergi, tvær aukaíbúðir, garður og bílskúr, einnig fylgir sér bílastæði. Steinveggur er um lóðina við götu. Húsið hefur áður ratað í fréttir.

Sjá nánar

 

Kaldakur, Garðabæ

Ásett verð: 450

Fermetrar: 456

Byggingarár: 2008

Innst í botnlanga í Akrahverfinu í Garðabæ. Fjögur svefnherbergi, þrjár stofur, þrjú baðherbergi, eldhús, tómstundarherbergi og bílskúr. Arinn er í stofu. Skjólsæll garður með sólpalli og heitum potti. Í hjónaherberginu er fataherbergi.

Sjá nánar

 

Sjafnargata, Reykjavík

Ásett verð: 410 milljónir

Fermetrar: 384

Byggingarár: 1930

Í húsinu eru sjö herbergi, þrjár stofur, tvö baðherbergi og tvö gestasalerni.  Af stigapalli efri hæðar er gengið upp teppalagðan stiga upp í arinstofu sem er á efstu hæð hússins. Skjólsæll garður sem snýr í suður. Sjafnargatan hefur áður ratað í fréttir en það hefur gengið hægt að selja það.

Sjá nánar

 

Auðnukór, Kópavogi

Ásett verð: 375 milljónir

Fermetrar: 440

Byggingarár: 2011

Nýlegt hús á útsýnisstað innst í botnlanga. Stór stofa, vínkjallari, fimm svefnherbergi og tvö baðherbergi. Gasarinn í stofunni.

Sjá nánar

 

Holtstún, Álftanesi

Ásett verð: 350 milljónir

Fermetrar: 289

Byggingarár: 2025

Glænýtt fimm herbergja einbýlishús. Hátt er til lofts, gólfsíðir gluggar og gólfhiti er í húsinu. Fjögur svefnherbergi og þrjú baðherbergi. Stór eignalóð og gert ráð fyrir nýjum golfvelli.

Sjá nánar

 

Dýjagata, Garðabæ

Ásett verð: 349 milljónir

Fermetrar: 396

Byggingarár: 2015

Gott útsýni og þrefaldur bílskúr. Í dag er húsinu skipt í tvær íbúðir en tekið er fram að hægt sé að færa aftur í eina íbúð. Þrjú svefnherbergi og fjögur baðherbergi.

Sjá nánar

 

Haukanes, Garðabæ

Ásett verð: 340 milljónir

Fermetrar: 384

Byggingarár: 1979

Stórt einbýlishús á tveimur hæðum á sjávarlóð á Arnarnesinu. 6 svefnherbergi og þar af er hjónaherbergi með fataherbergi. Garðurinn var allur tekinn í gegn sumarið 2023.

Sjá nánar

 

Sóleyjargata, Reykjavík

Ásett verð: 335 milljónir

Fermetrar: 414

Byggingarár: 1933

Heilt hús í miðbæ Reykjavíkur, í dag er þar rekið gistiheimili. Alls þrettán herbergi og bílskúr, bílskúrinn er í dag innréttaður sem stúdioíbúð.

Sjá nánar

 

Blikanes, Garðabæ

Fasteignamat: 305 milljónir

Fermetrar: 563

Byggingarár: 2001

Húsið er 563 fermetrar, átta herbergjum, fimm baðherbergjum, bílskúr, garðskála og heitum potti. Húsið er teiknað af Pálmari Kristmundssyni hjá PK arkitektum. Allar innréttingar í húsinu eru sérsmíðaðar.

Sjá nánar

 

Einbýlishús á sjávarlóð, Garðabæ

Óskað eftir tilboði

Til sölu er 785 fermetra einbýlishús á sjávarlóð á Arnarnesi, alls sjö svefnherbergi og fimm baðherbergi. Eldhús er afar veglegt og vel tækjum búið og skartar glæsilegri hönnunarinnréttingu frá Clive Christian í London. Útgengi er bæði úr stofum og eldhúsi út í garð. Rými sem henta einkar vel til veisluhalda. Á neðstu hæðinni er spa með stórri saunu, heitum potti, baraðstöðu með ísskáp, snyrtingu, tvöfaldri sturtu, afslöppunarrýmum og sólskála.

Sjá nánar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Vinsælt lag Sigurðar varð loks til þegar hann hitti Braga Valdimar: „Þá auðvitað datt þetta bara þar á einhverju korteri. Óþolandi“

Vinsælt lag Sigurðar varð loks til þegar hann hitti Braga Valdimar: „Þá auðvitað datt þetta bara þar á einhverju korteri. Óþolandi“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Jennifer segir Ben eiga að gera þetta eftir skilnaðinn við Jennifer

Jennifer segir Ben eiga að gera þetta eftir skilnaðinn við Jennifer
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þriggja metra háir ísjakar í brottfararverslun

Þriggja metra háir ísjakar í brottfararverslun
Fókus
Fyrir 6 dögum

5 hlutir sem hamingjusömustu pörin gera á kvöldin í staðinn fyrir að glápa á sjónvarpið

5 hlutir sem hamingjusömustu pörin gera á kvöldin í staðinn fyrir að glápa á sjónvarpið
Fókus
Fyrir 6 dögum

Love Island-sigurvegari telur sig hafa lausnina: „Þá mun sko dramað koma!“

Love Island-sigurvegari telur sig hafa lausnina: „Þá mun sko dramað koma!“