

Marvel-leikarinn Jon Bernthal náði heldur betur að móðga netverja síðasta sumar þegar hann sagðist ekki treysta fólki sem leggur sig. Hann ræddi upp blund-hneykslið í hlaðvarpinu Hot Ones Versus í vikunni þar sem skorað var á hann að biðja aðdáendur afsökunar.
„Ég biðst innilega afsökunar á þessu, og satt best að segja þá fór þetta aðeins úr böndunum hjá mér. Ég hef ekkert á móti því að fólk fái sér lúr – ég geri það bara ekki sjálfur og hef eiginlega ekki tíma fyrir það.“
Leikarinn var svo næstum búinn að skjóta sig í fótinn aftur en náði þó að bjarga sér fyrir horn og klára afsökunarbeiðnina.
„Mér finnst eins og þið hafið sennilega – afsakið – mér finnst eins og þið hafið líklega eitthvað betra við tímann að gera en að leggja ykkur, en afsakið. En ég erfi það ekki við ykkur.“
Bernthal spjallaði í hlaðvarpinu við mótleikara sinn úr vinsælu þáttaröðinni The Bear, Ebon Moss-Bachrach, en þeir eru báðir að leika í Broadway-leikritinu Dog Day Afternoon sem verður frumsýnt síðar í þessum mánuði. Moss-Bachrach sló á létta strengi og sagðist ætla að fylgjast sérstaklega vel með í leikhúsinu hvort hann standi Bernthal einhvern tímann að því að leggja sig. Sjálfur segist Moss-Bachrach elska að fá sér blund.
„Ég vildi að ég gæti lagt mig oftar en ég geri.“
Jon Bernthal lék aðalhlutverkið í Marvel-þáttunum The Punisher og Daredevil, þáttunum The Bear og The Walking Dead og svo í vinsælu Accountant-kvikmyndunum.