fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
433Sport

Strákarnir okkar mæta Japan – Unnið að því að skipuleggja annan leik

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 18. mars 2026 09:50

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

KSÍ getur nú staðfest að A-landslið karla mætir Japan í vináttuleik á þjóðarleikvanginum í Tókýó 31. maí næstkomandi. Unnið er að því að íslenska liðið leiki annan vináttuleik í leikjaglugganum.

Ísland og Japan hafa mæst þrisvar sinnum áður í A-landsliðum karla og hafa Japanir unnið þrjá sigra.

Síðasta viðureign liðanna var í Osaka í febrúar 2012 og var það fyrsti leikur íslenska liðsins undir stjórn hins sænska Lars Lagerbäck. Leiknum lauk með 3-1 sigri heimamanna, og mark Íslands í leiknum skoraði Arnór Smárason.

Heiðar Helguson skoraði tvö mörk þegar japanska liðið vann 3-2 sigur á City of Manchester Stadium árið 2004. Brynjar Björn Gunnarsson fékk rautt spjald seint í leiknum.

Fyrsta viðureign liðanna var á Laugardalsvelli árið 1971 og unnu gestirnir þá tveggja marka sigur fyrir framan tæplega 6 þúsund áhorfendur. Ríkharður Jónsson var þjálfari íslenska liðsins.

Við þetta má bæta að A landslið karla lék æfingaleik við japanska félagsliðið Hitachi Reysol í mars 1994 og vann 2-1 sigur með mörkum frá Ólafi Þórðarsyni og núverandi þjálfara A landsliðs karla, Arnari Gunnlaugssyni. Fram kemur í bók Víðis Sigurðssonar “Íslensk knattspyrna 1994” að íslenska liðinu hafi verið „boðið til Japans af þarlendu fjölmiðlafyrirtæki og áhorfendur voru um 18 þúsund, sem var vallarmet í bænum Nishikawada”.

Leikurinn í lok maí er liður í lokaundirbúningi Japana fyrir lokakeppni HM vestan hafs í sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Segir fólk í Garðabænum skiptast í fylkingar – „Það er enginn millivegur“

Segir fólk í Garðabænum skiptast í fylkingar – „Það er enginn millivegur“
433Sport
Í gær

Ræddi lygilega atburðarás í Kópavogi – „Engin gæsla og menn fóru að skiptast á höggum“

Ræddi lygilega atburðarás í Kópavogi – „Engin gæsla og menn fóru að skiptast á höggum“
433Sport
Í gær

Klásúla í samningi Bruno í sumar – Getur farið ódýrt frá United

Klásúla í samningi Bruno í sumar – Getur farið ódýrt frá United
433Sport
Í gær

Blönduðu sér í umræðu síðustu daga – „Ég er hrifinn af þessu“

Blönduðu sér í umræðu síðustu daga – „Ég er hrifinn af þessu“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ronaldo sendi væna sneið á meðan hann var í miðju viðtali

Ronaldo sendi væna sneið á meðan hann var í miðju viðtali
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segja milljónamæringana á Akranesi engu hafa skilað í vor – „Gísli á að vera þeirra Aron Sig“

Segja milljónamæringana á Akranesi engu hafa skilað í vor – „Gísli á að vera þeirra Aron Sig“