fbpx
Miðvikudagur 04.júní 2025
Fókus

Sara upplifði verstu martröð foreldra – „Hann virðist hafa upplifað þetta sem ástarsamband milli sín og litlu dóttur minnar“

Fókus
Mánudaginn 2. júní 2025 08:29

Sara Gabríela.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sara Gabríela er 32 ára, tveggja barna móðir sem ólst upp í Svíþjóð og á Íslandi. Hún er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Sterk saman.

„Þegar ég var sjö vikna þurfti mamma að flýja með mig og systur mína til Svíþjóðar,“ segir hún.

„Pabbi eldri systur minnar hafði misnotað systur mína kynferðislega, mjög gróflega, var dæmdur í átján mánaða fangelsi, slapp út og hélt áfram að misnota hana. Mamma sá ekkert annað í stöðunni en að fara með okkur.“

„Frá ellefu ára aldri fór hann því að hafa samfarir við hana“

Sara segir að móðir hennar hafi, sem barn, orðið fyrir hræðilegri misnotkun af hendi föður síns, svo hún hikaði ekki við að kæra barnsföður sinn en Sara segir að hún hafi í annað skiptið orðið fyrir barðinu á meðvirkni fjölskyldu sem stóð með ofbeldismanni.

„Mamma mín var skilnaðarbarn frá ellefu ára aldri og pabbi hennar, afi minn, sagði að hún þyrfti að koma í stað mömmu sinnar. Vera góð við hann eins og hún hafði verið. Frá ellefu ára aldri fór hann því að hafa samfarir við hana. Nauðga henni.“

Afinn samt hluti af fjölskyldunni

Móðir Söru sagði frá sinni sögu í þættinum Fólk með Sirrý þegar Sara var sjö ára.

Afi hennar var samt alltaf hluti af fjölskyldunni þeirra. Móðurbróðir Söru, sem hún leit á sem föðurímynd tók eigið líf þegar hún var um sex ára en hann var í mörg ár á Breiðuvík.

Unglingsárin voru erfið. Sara flúði raunveruleika sinn í neyslu. Það var norm í hennar heimi að eldri strákar og menn notfærðu sér ungar stelpur. Hún segir að hún hafi orðið fyrir barðinu á þeim og var nauðgað.

„Ég flutti að heiman fimmtán ára,“ segir hún.

Eignaðist barn

Þegar hún var nítján ára lést yngri systir hennar og móðir hennar flutti aftur erlendis.

„Ég eignaðist mitt fyrsta barn 21 árs og það breytti mér. Ég, með mína reynslu og vitneskju passaði alltaf hver fékk að vera með barnið mitt og setti hana ekki einu sinni á leikskóla,“ segir hún.

Um þriggja ára aldur fór móðir Söru að taka eftir merkjum um undarlega hegðun hjá dótturdóttur sinni.

„Ástarsamband milli sín og litlu dóttur minnar“

Með tímanum fór Sara að taka eftir merkjum um breytta hegðun, þráhyggju og áráttu í kringum föðurafa barnsins.

„Einn daginn vorum við á leiðinni í heimsókn til afa hennar í heimsókn og dóttir mín sagði við mig og pabba sinn að við ættum að segja afa að hætta þessu,“ segir hún.

Við tók langt ferli, hún sagði frá öllu í smáatriðum og grafískt, eitthvað sem fimm ára börn eiga ekki að vita.

„Þegar ég hugsa til baka sé ég auðvitað fullt af merkjum en hann virðist hafa upplifað þetta sem ástarsamband milli sín og litlu dóttur minnar,“ segir hún.

Sara er mögnuð ung kona sem hefur upplifað margt og talar opinskátt um erfið málefni sem margir forðast.

Barnaníð þrífst í þögninni, þess vegna þarf að tala um þessa ömurlegu og dökku hliðar samfélagsins. Hlustaðu á þáttinn í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Dísa um fyrstu kynni hennar og Júlís Heiðars – Heimurinn virtist staðráðinn að koma þeim saman

Dísa um fyrstu kynni hennar og Júlís Heiðars – Heimurinn virtist staðráðinn að koma þeim saman
Fókus
Fyrir 3 dögum

Grindvíkingar syngja um þrána eftir heimahögunum – Myndband

Grindvíkingar syngja um þrána eftir heimahögunum – Myndband
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enok tjáir sig um fröllu-hneykslið – „Við Birgitta erum góð sko, við erum bara best í heimi“

Enok tjáir sig um fröllu-hneykslið – „Við Birgitta erum góð sko, við erum bara best í heimi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hildur Líf gerir það gott úti í Arizona

Hildur Líf gerir það gott úti í Arizona
Fókus
Fyrir 6 dögum

Missti vinnuna eftir að hún kvartaði undan feitu fólki í Pilates

Missti vinnuna eftir að hún kvartaði undan feitu fólki í Pilates
Fókus
Fyrir 6 dögum

Jón lætur Enok heyra það – „Barnið ykkar mun sjá svona hluti“

Jón lætur Enok heyra það – „Barnið ykkar mun sjá svona hluti“