fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
EyjanFastir pennar

Árás á Alþingi

Ritstjórn Eyjunnar
Sunnudaginn 24. janúar 2021 19:00

Frá óeirðunum í janúar 2009. MYND/VILHELM

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það varðar allt að lífstíðarfangelsi að ráðast á Alþingi. Aðeins einu sinni hefur verið sakfellt á grundvelli 1. mgr. 100. gr. hegningarlaga.

„Þarna var farið yfir öll mörk,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson forseti í samtali við Ríkisútvarpið í kjölfar árásarinnar á Bandaríkjaþing í vikunni sem leið og bætti við: „Þessi tíðindi vekja auðvitað mikla undrun, vægast sagt. Manni finnst ótrúlegt að í landi hinnar miklu öryggisgæslu, á hæð sem á að vera betur varin en flestir aðrir blettir á jarðarkringlunni, geti fólk ruðst inn án þess að lögreglumenn og aðrir bregðist við, eins og maður skyldi ætla að þeir myndu gera.“

Alþingi er friðheilagt

Atburðirnir í Washington í liðinni viku hafa vakið ótal spurningar og leitt marga til umhugsunar um mikilvægi þess að staðinn sé vörður um löggjafarsamkundur og aðrar grundvallarstofnanir. Í stjórnarskrám ríkja eru jafnan ákvæði um sérstaka vernd þjóðþinga en í 36. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands segir að Alþingi sé friðheilagt. Enginn má raska friði þess né frelsi og því er veitt sérstök refsivernd sem útfærð er í almennum hegningarlögum en þar segir í 1. mgr. 100. gr.: „Hver, sem ræðst á Alþingi, svo að því eða sjálfræði þess er hætta búin, lætur boð út ganga, sem að því lýtur, eða hlýðir slíku boði, skal sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár, og getur refsingin orðið ævilangt fangelsi, ef sakir eru mjög miklar.“ Árás á Alþingi er því í flokki allra alvarlegustu afbrota.

Þess finnast ekki mörg dæmi að friðhelgi Alþingis hafi þótt raskað, en þó má rifja upp að meðan hátíðarfundur Alþingis stóð yfir á Þingvöllum 28. júlí 1974 truflaði hópur manna fundinn með mótmælaaðgerðum og þóttu þeir hafa brotið 36. og 74. gr. stjórnarskrár. Þeim voru þó dæmdar miskabætur þar sem þeir voru í haldi lögreglu lengur en ástæða var til.

Ráðist á þingverði og lögregluþjóna

Seinast var ákært fyrir brot gegn 100. gr. hegningarlaga árið 2010 en um var að ræða refsimál sem höfðað var gegn níu einstaklingum sem höfðu ásamt hópi óþekktra manna ruðst inn í Alþingishúsið meðan á þingfundi stóð og beitt þingverði ofbeldi.

Ákærðu voru í Héraðsdómi Reykjavíkur sýknaðir af broti gegn 1. mgr. 100. gr. Dómari taldi ekkert í gögnum málsins benda til þess að fyrir níumenningunum hefði vakað að kúga Alþingi eða ráðast á þingið með þeim hætti að sjálfræði þess yrði hætta búin.

Fjórir hinna níu ákærðu voru aftur á móti sakfelldir fyrir brot á 106. gr. hegningarlaga sem fjallar um árás á opinberan starfsmann. Andri Leó Lemarquis hlaut fjögurra mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir að hafa meðal annars veist að þingverði, bitið lögregluþjón í höndina og annan í öxlina. Þór Sigurðsson var dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa hindrað þingvörð með ofbeldi í að loka dyrum Alþingis. Þá var þeim Sólveigu Önnu Jónsdóttur og Steinunni Gunnlaugsdóttur gerð 100 þúsund króna sekt hvorri fyrir að hafa haldið þingverði og komið þannig í veg fyrir að hann gæti sinnt skyldum sínum. Steinunn var að auki dæmd fyrir að hafa óhlýðnast fyrirmælum lögreglu.

Málinu var ekki áfrýjað. Í yfirlýsingu frá hinum dómfelldu sagði að Alþingi væri „smánarblettur á íslensku samfélagi“ og að ritstjórar helstu dagblaða landsins væru „Göbbelsar íslensks ríkis og alþjóðakapítals“. Svo mörg voru þau orð.

Grjótkast á Alþingishúsið

Aðeins einu sinni hefur verið sakfellt fyrir brot á 100. gr. hegningarlaga. Það var með dómi Sakadóms Reykjavíkur 1950 en sá dómur var að mestu leyti staðfestur í Hæstarétti tveimur árum síðar. Atvik málsins voru þau að brotist höfðu út átök á Austurvelli 30. mars 1949 við afgreiðslu tillögu á Alþingi um inngöngu í Atlantshafsbandalagið. Árás var gerð á Alþingishúsið sem talin var ógn við starfsfrið þess og hefði sjálfræði þess verið ógnað.

Alls voru 24 menn ákærðir fyrir að eiga þátt í árásinni og voru 20 þeirra sakfelldir. Sá sem þyngstan dóm hlaut var dæmdur til fangelsisvistar í 18 mánuði og þá voru fjórir sviptir kjörgengi og kosningarétti. Í Hæstarétti voru hinir sömu menn sakfelldir en dómar sumra styttir.

Meðal hinna dómfelldu var Jón Múli Árnason, faðir áðurnefndrar Sólveigar Önnu. Sannað þótti að mati Hæstaréttar að hann hefði kastað steini í átt að varaliðsmönnum lögreglu meðan upphlaupið stóð sem hæst en sá steinn hefði þó ekki hæft neinn þeirra. Jón Múli hlaut sex mánaða fangelsisdóm.

Engum refsidóma Hæstaréttar var nokkru sinni fullnægt að undanskilinni sviptingu kosningaréttar og kjörgengis. Loks gáfu handhafar forsetavalds hinum dómfelldu upp sakir árið 1957.

Lífshættulegt ástand

Stefán Gunnar Sveinsson, sagnfræðingur og blaðamaður, ritaði bók um óeirðirnar á árunum 2008 og 2009 sem kenndar voru við búsáhöld. Hann nefnir í bók sinni að færa hefði mátt rök fyrir því að taka hefði þurft harðar á þeim hluta mótmælenda sem fór fram með ofbeldi fyrr en raunin varð. Í niðurstöðum rannsóknar Stefáns Gunnars segir að það hafi í reynd verið mikil mildi að enginn úr hópi lögregluþjóna eða mótmælenda hefði látið lífið í óeirðunum – litlu hefði munað að svo færi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Tuttugasta öldin, taka tvö

Sigmundur Ernir skrifar: Tuttugasta öldin, taka tvö
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Veröld sem var

Óttar Guðmundsson skrifar: Veröld sem var
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Fjörutíu og tvö prósent

Þorsteinn Pálsson skrifar: Fjörutíu og tvö prósent
EyjanFastir pennar
24.03.2024

Björn Jón skrifar: Verðleikar og andverðleikar 

Björn Jón skrifar: Verðleikar og andverðleikar 
EyjanFastir pennar
16.03.2024

Sigmundur Ernir skrifar: Tími öfgaaflanna er aftur runninn upp

Sigmundur Ernir skrifar: Tími öfgaaflanna er aftur runninn upp
EyjanFastir pennar
16.03.2024

Óttar Guðmundsson skrifar: Móðgaða fólkið

Óttar Guðmundsson skrifar: Móðgaða fólkið
EyjanFastir pennar
10.03.2024

Björn Jón skrifar: Laugavegurinn — in memoriam

Björn Jón skrifar: Laugavegurinn — in memoriam
EyjanFastir pennar
09.03.2024

Sigmundur Ernir skrifar: Hvirfilbylur bölmóðsins

Sigmundur Ernir skrifar: Hvirfilbylur bölmóðsins