fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Sólrún og Hildur til liðs við Terra umhverfisþjónustu

Eyjan
Mánudaginn 20. mars 2023 11:32

Sólrún Hjaltested og Hildur Emilsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sólrún Hjaltested hefur verið ráðin mannauðsstjóri Terra umhverfisþjónustu og Hildur Emilsdóttir sem verkefnastjóri stefnumótunar og umbóta félagsins. Báðar hafa þær hafið störf og eru í teymi sjálfbærrar menningar og stjórnarhátta sem er stoðsvið hjá Terra umhverfisþjónustu auk þess að sinna dótturfélögum þess.

Sólrún Hjaltested mun sem mannauðsstjóri leiða þróun í mannauðsmálum félagsins og kemur inn með fjölbreytta og mikla reynslu í mannauðsmálum bæði hjá einkafyrirtækjum og hjá hinu opinbera. Sólrún kemur til Terra umhverfisþjónustu frá Bestseller en þar starfaði hún sem mannauðsstjóri síðastliðin fimm ár. Þar áður var Sólrún hjá Vodafone en hún starfaði þar sem fræðslustjóri einnig í um fimm ár. Frá árinu 2004 til 2011 starfaði hún hjá Svæðisskrifstofu Reykjaness um málefni fatlaðra (SMFR), ýmist sem ráðgjafi í fræðslu- og gæðamálum, sviðsstjóri fræðslu- og þróunarsviðs eða sviðsstjóri starfsmannasviðs. Sólrún er með BA próf í sálfræði og MS próf í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands.

„Það er mikil þróun framundan á mörgum sviðum hjá fyrirtækinu, þar með talið í mannauðsmálum. Ég hlakka mikið til að takast á við þetta spennandi verkefni. Maður finnur fyrir miklum krafti hérna innanhúss og hér starfar flott fólk sem verður gaman að vinna með. Hlutverk fyrirtækisins er mikilvægt og það hefur góðan tilgang. Þvílík lukka að fá tækifæri til að vinna í slíku umhverfi og fá að leiða þróun í mannauðsmálum,“ segir Sólrún.

Hildur Emilsdóttir mun sem verkefnastjóri stefnumótunar og umbóta leiða nýja stefnu félagsins og umbótarverkefni ásamt því að móta nýjar áherslur í lausna- og árangursmiðaðri menningu hjá félaginu. Hildur kemur frá Advania þar sem hún starfaði sem verkefnastjóri í innleiðingu fjárhagskerfa. Þar á undan var hún í níu ár hjá Coca-Cola Europacific partners (áður Vífilfell) þar sem hún starfaði sem sérfræðingur á vörustjórnunarsviði og verkefnastýrði m.a. vörunýjungum áfengra og óáfengra drykkja. Hildur er viðskiptafræðingur með markaðsáherslur frá Háskólanum á Bifröst og lauk á síðastliðnu vori meistaranámi í verkefnastjórnun (MPM) frá Háskólanum í Reykjavík.

„Það er mikill heiður að fá að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem er í gangi hjá Terra umhverfisþjónustu. Það var rosa vel tekið á móti mér og ég upplifi mikla stemmningu. Það er spennandi að vinna hjá fyrirtæki í umhverfismálum þar sem mikill vöxtur er framunda. Ég hef mikinn áhuga á að minnka sóun og skapa vettvang fyrir allt starfsfólk til að koma ábendingum á framfæri um hvað betur má fara í vinnuumhverfinu og að við drögum lærdóm af þeim mistökum sem við gerum. Hér er frábært fólk og ég hlakka til að fá að leiða stefnumótun fyrirtækisins og að innleiða verkefnamenningu,“ segir Hildur.

Gróa Björg Baldvinsdóttir, framkvæmdastjóri sjálfbærrar menningar og stjórnarhátta, segir Terra umhverfisþjónustu heppið að hafa fengið Sólrúnu og Hildi til liðs við teymi sjálfbærrar menningar og stjórnarhátta félagsins. ,,Þær eru lykilstarfsmenn í þróun menningu félagsins og innleiðingu nýrrar stefnu. Við viljum skapa framúrskarandi og skemmtilegt umhverfi fyrir starfsfólkið okkar og mun Sólrún leiða það mikilvæga verkefni af sínum einskæra krafti og ástríðu. Einnig viljum við tryggja faglega innleiðingu á nýrri stefnu og skapa skýra umgjörð fyrir umbótaverkefni innan félagsins sem Hildur mun leiða af jákvæðni og staðfestu og passa vel upp á að við fögnum litlum sem stórum sigrum á leiðinni. Við bjóðum þær hjartanlega velkomnar til starfa,“ segir Gróa Björg.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt