Knattspyrnan á hug flestra þessa dagana, enda stendur HM yfir og margir leikir hafa verið hin besta skemmtun, jafnvel er talað um besta heimsmeistaramót allra tíma.
Íslensku þulirnir sem lýsa leikjunum verða þjóðareign og fer þar vitaskuld fremstur Guðmundur Benediktsson sem er kominn á sérstakan stall í þeirri deild við hlið Hemma Gunn, Sigurðar Sigurðssonar og Bjarna Fel.
Sá síðastnefndi er enn gangandi alfræðiorðabók um allt sem viðkemur fótboltanum, en segir þó öllum sem vilja heyra að hann horfi minna en áður á útsendingar Ríkissjónvarpsins frá HM, þar sem honum finnist málfarið orðið svo slæmt.
Er þá Bleik nokkuð brugðið…