
Jón Gnarr þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi borgarstjóri í Reykjavík segir tími kominn til að Samfylkingin haldi ekki áfram við stjórnvölin í borginni eftir kosningar í vor en eins og kunnugt er myndaði Besti flokkurinn undir forystu Jón meirihluta í borgarstjórn með Samfylkingunni, frá 2010-2014. Segja má því að hann sé að senda sínum gamla samstarfsflokki í borgarstjórn og núverandi samstarfsflokki hans flokks í ríkisstjórn sterk skilaboð.
Þetta kemur í fram í viðtali við Jón og S. Björn Blöndal, aðstoðarmann þess fyrrnefnda í borgarstjóratíð hans og borgarfulltrúa Bjartar framtíðar frá 2014-2018, í hlaðvarpsþættinum Korter í kosningar sem stýrt er af Magnúsi Sigurbjörnssyni sem hefur starfað innan Sjálfstæðisflokksins og Pétri Ólafssyni sem starfaði áður innan Samfylkingarinnar.
Jón segir að þegar Besti flokkurinn og Samfylkingin hafi myndað meirihluta eftir borgarstjórnarkosningarnar árið 2010 hafi alveg komið til greina af sinni hálfu að mynda meirihluta með Sjálfstæðisflokknum en það hafi verið einhvers konar pólitískur ómöguleiki fyrir því til staðar. Björn segist hafa lagt til að flokkurinn sneri sér strax að Samfylkingunni því Dagur B. Eggertssin þáverandi oddviti þess flokks væri mun heppilegri sem samstarfsmaður en andstæðingur:
„Hann mun alveg jarða okkur. Tökum hann bara með.“
Jón segir að Degi hafi verið ráðlagt að fara alls ekki í samstarf með Besta flokknum enda myndi sá fyrrnefndi fá hrósið ef samstarfið gengi vel en Degi kennt um ef illa færi. Hins vegar hafi tekist að afsanna þetta. Jón og Björn eru sammála um að rétt hafi verið að mynda meirihluta með Samfylkingunni samstarfið hafi gengið vel.
Jón segir hins vegar nú 12 árum eftir að hann yfirgaf borgarstjórn að kominn sé tími til að Samfylkingin verði ekki áfram í meirihluta í Reykjavík eins og hún hefur verið óslitið síðan 2010 þegar flokkur Jóns myndaði meirihluta með fyrrnefnda flokknum:
„Mér finnst tími Samfylkingarinnar í Reykjavík vera liðinn. Mér finnst Samfylkingin vera búin að vera allt of lengi við völd í Reykjavík.“
Jón segist vilja spá aukinni áherslu í borginni á einkaframtak. Segist hann vera viss um að hans flokkur Viðreisn muni koma á óvart í Reykjavík:
„Við erum með alveg fáránlega sterkan lista.“
Hann vísar einnig til endurnýjunar á lista Sjálfstæðisflokksins og á ekki von á góðu gengi Framsóknarflokksins. Miðflokkurinn sé hins vegar ákveðinn óvissuþáttur sem gæti tekið fylgi frá bæði Framsókn og Sjálfstæðisflokknum. Jón býst við hægri sveiflu í borgarmálunum:
„Mér finnst orðið svolítið svona … æ það er orðið svolítið mikið svona mussustemmning víða.“
Hvað hann á við með því útskýrir Jón ekki en hann segist hafa sjálfur verið hluti af þessari stemmningu. Það séu komnar kerfislægar fyrirstöður en hvað felst í þeim lýsir Jón ekki nánar.
Björn tekur undir með Jóni um að kominn sé tími á Samfylkinguna í meirihluta borgarstjórnar. Jón segir sanngjarnt að henni verði ýtt til hliðar. Björn segir að ef flokkurinn eigi að vera áfram í meirihluta þurfi hann að færa rök fyrir því en það hafi verið flokknum lífsnauðsynlegt að breyta ásýnd sinni með því að fá Pétur Marteinsson inn sem nýjan oddvita.
Björn hefur mikla trú á Björgu Magnúsdóttur oddvita Viðreisnar og segir stöðu Hildar Björnsdóttur sem oddviti Sjálfstæðisflokksins hafa styrkst með mannaskiptum á framboðslistanum.
Jón segir vanda Samfylkingarinnar vera augljósan. Það hafi verið mörg vandræðamál svo sem kynferðisbrotamálið á leikskólanum Múlaborg en þar hafi niðurstaðan verið að gera ekki neitt. Hann gagnrýnir einnig Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra:
„Borgarstjóri mætir á fundi með sólgleraugu. Það er kynntur listi og borgarstjóri er ekki á þeirri mynd.“
Þarna séu sóknarfæri fyrir aðra flokka í borginni.
Björn segir stemmninguna ekki með Samfylkingunni:
„Ég held að það sé sá þreyta gagnvart sósíalískri forræðishyggju akkúrat núna í samfélaginu. Það er ekki gott fyrir Samfylkinguna. Ég held að harða vinstrið sleppi af því það skiptir ekki öllu máli fyrir fylgismenn þess. Fólk hefur akkúrat núna ekki alveg tolerans (umburðarlyndi, innsk. DV) fyrir því að láta segja sér hvað það á að gera. Það getur komið Viðreisn og Sjálfstæðisflokknum vel og það getur líka komið Miðflokknum mjög vel.“
Jón segir kominn tíma á að taka til í rekstri borgarinnar og rýma þar til fyrir aðkomu einkaaðila:
„Minni forsjárhyggja.“
Þáttinn í heild er hægt að nálgast hér fyrir neðan.