fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Eyjan

Andri Þór Guðmundsson: Breytingin yfir í Beru skerpir fókusinn hjá Ölgerðinni

Eyjan
Mánudaginn 16. mars 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þótt ýmsar kvaðir fylgi því að vera með fyrirtæki skráð á markað hefur það einnig ýmsa kosti í för með sér, ekki síst fyrir fyrirtæki á neytendamarkaði. Andri Þór Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Ölgerðarinnar, telur að skráning á markað hafi stuðlað að bættri markaðshlutdeild. Fjárhagsárið er mars til febrúar en ekki almanaksárið. Ástæðan fyrir því er jólin eru annað tveggja tímabila á árinu sem mest er að gera og þá ríður á að geta einbeitt sér að því að selja í stað þess að þurfa að liggja yfir áætlunum og slíku. Nafni Ölgerðarinnar var breytt í Beru um síðustu mánaðamót. Andri Þór er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum:

Andri Þór Guðmundsson - 6
play-sharp-fill

Andri Þór Guðmundsson - 6

„En svo að skipulaginu, þetta með að gera Beru að móðurfélagi og Ölgerðina að dótturfyrirtæki og systurfélagi hinna er náttúrlega algjör „no-brainer“ að mínu viti vegna þess að þetta eykur fókusinn hjá hverri rekstrareiningu fyrir sig til muna. Ölgerðin verður miklu fókuseraðri í því sem að hún er að gera og Bera mun náttúrulega þurfa að sinna vöruhúsa- og dreifingarþjónustu á hæsta gæðastigi fyrir öll fyrirtækin í framtíðinni. Þannig að árangurinn, mælingarnar, fókusinn, þetta er algjör „no-brainer“ að mínu viti.“

Já, menn hafa sagt við mig og það var nú kennt líka í MBA-náminu hérna í gamla daga, það er auðvitað ákveðið ófrelsi að vera með skráð fyrirtæki, en það tryggir ákveðinn aga sem getur afstýrt slysum.

„Já. Það er, það er alveg rétt. Ég kvarta ekki og þetta hefur reynst okkur vel. En ég er viss um það að einhverjir þarna úti gætu hugsað sér gott til glóðarinnar með að reyna að komast yfir Beru og skrá af markaði og leysa upp. Og það er vissulega álitlegur kostur vegna þess að þessi markaður og verðlagning fyrirtækja þarna hefur nú ekki verið upp á marga fiska. Ástandið í Kauphöllinni hefur nú ekki verið neitt frábært´.“

Ég hjó eftir því að fjárhagsárið ykkar er ekki almanaksárið. Er einhver ástæða fyrir því?

„Já, ástæðan er sú að við erum með tvö síson kannski eða tvo hápunkta á árinu. Það er annars vegar sumarið og hins vegar jólin. Og eftir jólin koma einhver skil kannski af jólavöru og annað slíkt. En þessi cycle er bara svo lógískur. Þú ert ekki að eyða tíma hjá stjórnendum eða sölu- og markaðsfólki á háannatíma í kringum jólin í að vera að semja áætlanir. Þú ert bara úti að selja. Það er bara 100% fókus á það. Janúar og febrúar eru okkar rólegustu mánuðir. Það er minnst að gera þannig séð í bisnessnum þannig að þessi cycle meikar mjög mikinn sens. Alveg eins og hjá Högum, við deilum þessu fjárhagsári.“

Einmitt, einmitt. Tíminn hleypur frá okkur.

„Erum við búnir? Þetta er ekki neitt.“

Við gætum haldið áfram lengi. En ég fæ nú kannski bara frekar að hnippa í þig aftur seinna.

„Já.“

En það er bjart fram undan hjá Beru?

„Það eru spennandi tímar fram undan hjá Beru. Það er gríðarlega mikið af tækifærum og ég er þarna áfram. Ég ætla að grípa þessi tækifæri og sjá til þess að við vinnum úr þeim og moðum úr þeim og ég lít bara spenntur fram á veginn.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Andri Þór Guðmundsson: Verkefnið að fá samstarfsaðila sem kemur með meira en bara peninga

Andri Þór Guðmundsson: Verkefnið að fá samstarfsaðila sem kemur með meira en bara peninga
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Nei eða já? Af eða á?

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Nei eða já? Af eða á?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Þjóðin er klofin óháð ESB – þarf bara að fylgjast með Alþingi síðustu 12 mánuðina – sægreifar og kaupfélagið munu borga áróðurinn

Orðið á götunni: Þjóðin er klofin óháð ESB – þarf bara að fylgjast með Alþingi síðustu 12 mánuðina – sægreifar og kaupfélagið munu borga áróðurinn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Dómsmálaráðherra hjá Sameinuðu þjóðunum: Jöfn skipting fæðingarorlofs styrkir stöðu kvenna á vinnumarkaði

Dómsmálaráðherra hjá Sameinuðu þjóðunum: Jöfn skipting fæðingarorlofs styrkir stöðu kvenna á vinnumarkaði
Eyjan
Fyrir 1 viku

Alma Möller: Eðlilegt að Nýi Landspítalinn sjái um spítalaframkvæmdir hér á landi – nýta sérþekkinguna

Alma Möller: Eðlilegt að Nýi Landspítalinn sjái um spítalaframkvæmdir hér á landi – nýta sérþekkinguna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristinn bæjarstjóraefni Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra á Seltjarnarnesi

Kristinn bæjarstjóraefni Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra á Seltjarnarnesi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson á þingi Samtaka iðnaðarins: Afnemum neitunarvald landeigenda – einföldum regluverkið

Jóhann Páll Jóhannsson á þingi Samtaka iðnaðarins: Afnemum neitunarvald landeigenda – einföldum regluverkið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Miðaldir eru að baki á Íslandi

Sigmundur Ernir skrifar: Miðaldir eru að baki á Íslandi
Hide picture