fbpx
Miðvikudagur 04.mars 2026
EyjanFastir pennar

Óttar Guðmundsson skrifar: Fréttastofujól

Eyjan
Laugardaginn 3. janúar 2026 15:00

Mynd/Grok

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jól og áramót eru tími hins fyrirséða þar sem hefðir eru ríkjandi. Sama gildir um fréttastofur sjónvarps í aðdraganda jóla. Þar eru sömu fréttirnar fluttar árlega.

Í desember er leitast við sýna öfluga jólaskreytingameistara sem lýsa upp húsið sitt og nánasta umhverfi með mörg þúsund ljósaperum. Litríkir, glitrandi jólasveinar fikra sig upp húsvegginn og glampandi snjólkallar brosa í garðinum. Þetta jólaskreytingaóða fólk segist vilja lýsa þau upp skammdegið af tómri góðmennsku. Pirraðir nágrannar og himinháir rafmagnsreikningar skipta engu máli.

Næst taka við fréttir af jólatónleikum með viðtali við hljómlistarmann með tóndæmum. Fréttamaðurinn brosir góðlátlega og fyrir viðmælandann er þetta ómetanleg auglýsing. Þessu fylgir umfjöllun um vinsælustu jólagjöfina og mest keyptu bækurnar með viðtali við verslunarfólk.

Á Þorláksmessu fara fréttamenn hamförum í skötuveislufréttum. Þeir fara á staði þar sem fólk situr að snæðingi og spyrja ótrúlega heimskulegra spurninga. Venjulega ná þeir sér í 2-3 börn sem finnst skatan vond. Á þessum Þorlák náðu þeir mynd af barni sem mætti í skötuveislu með tauklemmu á nefinu. Síðan er frétt af friðargöngunni með sömu skrítnu spurningunum: „Af hverju er friður á jörð svona mikilvægur?“

Síðan kemur fréttin um fólk á síðasta snúningi í jólainnkaupum. Fréttamenn fara í verslanir og reka hljóðnemann upp í fólk sem er seint á ferð og spyrja.“ Af hverju ertu svona seinn?“

Strax eftir jól koma fréttir fólki sem er að skipta jólagjöfum og af hverju. „Ég er að skipta þessum jakka af því að hann passaði ekki!“ „Mig langaði bara ekki í þessa skó!“

Áramótafréttir fjalla um flugeldasölu og svifryk í lofti. „Hvað ætlarðu að eyða miklu í flugelda?

Allt er þetta kennslubók í fréttleysu.

Fréttastofan er með þessu neysluhvetjandi. Venjulegur borgari fyllist samviskubiti. Hann skreytti ekki húsið sitt, fór ekki á jólatónleika, át ekki skötu og keypti ekki réttu bækurnar og fór ekki í Friðargöngu og keypti ekki nógu mikið af flugeldum björgunarsveitanna. Með þessu verður fréttastofan skoðanamyndandi og rennur saman við auglýsingadeildina. Boðskapurinn er að óheft kaupæði sé hið besta mál á jólum enda má fresta öllum greiðslum fram eftir árinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Samfélagsmiðill fyrir sjálfstæða Íslendinga

Nína Richter skrifar: Samfélagsmiðill fyrir sjálfstæða Íslendinga
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Lokaorð læknisins

Óttar Guðmundsson skrifar: Lokaorð læknisins
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Nína Richter skrifar: AI spegill, herm þú mér, með áhuga á sjálfum sér

Nína Richter skrifar: AI spegill, herm þú mér, með áhuga á sjálfum sér
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Nína Richter skrifar: Þessi ógeðslegu skjöl

Nína Richter skrifar: Þessi ógeðslegu skjöl
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Meinið, meðulin og hliðarverkanir þeirra

Þorsteinn Pálsson skrifar: Meinið, meðulin og hliðarverkanir þeirra
EyjanFastir pennar
31.01.2026

Sigmundur Ernir skrifar: Nú skal sótt að kvenfrelsinu

Sigmundur Ernir skrifar: Nú skal sótt að kvenfrelsinu
EyjanFastir pennar
31.01.2026

Óttar Guðmundsson skrifar: Sr. Sæmi og skrattinn

Óttar Guðmundsson skrifar: Sr. Sæmi og skrattinn