fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
EyjanFastir pennar

Svarthöfði skrifar: Gamlir fóstbræður bregðast ei vondum málstað – átta sig ekki á því að þeirra heimur er horfinn

Svarthöfði
Miðvikudaginn 21. janúar 2026 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svarthöfða fannst það skemmtileg tilbreyting að fá fyrrverandi forseta lýðveldisins, Ólaf Ragnar Grímsson í Silfrið á mánudag að tjá sig um heimsmál og stöðu Íslands. Ansans ári hvað hann lítur vel út, það er eins og maðurinn eldist hreint ekki. Hárið reyndar orðið hvítt en að öðru leyti var ekki að sjá að á skjánum væri maður á níræðisaldri.

Þegar hann hóf upp raust sína runnu þó tvær grímur á Svarthöfða og ekki er laust við að hann hafi velt því fyrir sér, þótt ekki væri nema eitt lítið andartak, hvort forsetinn fyrrverandi eigi málverk af sjálfum sér uppi á háalofti.

Raunar skammast Svarthöfði sín eilítið fyrir gullfiskaminnið því að vitaskuld á hann, sem hefur fylgst með pólitíkinni í áratugi, að muna hvern mann Ólafur Ragnar hefur að geyma. Hann er með mestu stjórnmálaskörungum sinnar kynslóðar og ekki aðeins á Íslandi heldur er hann á heimsmælikvarða. En svo sem títt er um menn af þessari hlaupvídd vega gallarnir upp á móti kostunum og því miður hefur forsetinn fyrrverandi einatt gapað upp í einræðisherra og milljarðamæringa og tekið samneyti við slíka fram yfir flest. Virðist svo enn vera.

Svarthöfði viðurkennir að hann hristi hausinn er hann heyrði fyrrverandi forseta lýðveldisins tala með velþóknun um það hvernig valdaspilið og hlutirnir hefðu nú breyst í Washington og nú væri þörf á því að taka tvo fundi í Washington fyrir hvern einn sem tekinn væri í Brussel. Greinilega speglar Ólafur Ragnar sig í Donald Trump, Bandaríkjaforseta, og umgengni hans um vald sem hann ýmist hefur eða tekur. Hefur þetta enda löngum verið draumur Ólafs, að eigna sér völdin. Sem valdalítill forseti Íslands virkjaði hann málskotsrétt forseta og tók upp á því að tala fyrir sinni eigin utanríkisstefnu, sem ekki var sú sama og ríkisstjórn og meirihluti Alþingis fylgdi, á ferðalögum sínum erlendis.

Að gefnu tilefni benti Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar, á það í kjölfar ummæla Ólafs Ragnars í Silfrinu að talsvert framboð er af „öldnum höfðingjum sem horfa vestur um haf með aðdáun. Þeir eru sem betur fer allir fyrrverandi hitt og þetta.“

Reis þá upp á afturlappirnar gamall pólitískur refur og móðgaðist þetta líka heiftarlega fyrir hönd Ólafs Ragnars og kannski eilítið fyrir sína eigin. Össur Skarphéðinsson, rétt stiginn út úr flugvélinni frá Danmörku, fyrtist mjög við og kallaði Sigmar mannfjanda, auk þess sem hann sakaði hann um að kunna ekki mannasiði. Svarthöfða fannst þetta nú koma úr verstu átt því sjálfur hefur Össur átt það til að missa sig eitthvað út fyrir stranga etíkettu í umfjöllun um menn og málefni, hafi honum þótt tilefnið ærið. Má taka ummælin um Sigmar sem dæmi um einmitt slíkt.

Svarthöfða er ekki kunnugt um að Össur hafi gapað upp í nokkurn mann, nema þá helst Ólaf Ragnar Grímsson, og segja má að Ólafur Ragnar hafi endurgoldið hollustuna í bókinni Þjóðin og valdið sem kom út árið 2024. Í bókinni fjallar forsetinn fyrrverandi um fjölmiðlalögin og Icesave og birtir dagbókarfærslur sínar þar sem hann vitnar í fjölmörg einkasamtöl við marga helstu stjórnmála- og embættismenn þjóðarinnar og upplýsir um innihald samtala sinna við fjölda fólks sem taldi sig ræða við forsetann í trúnaði. Fer hann jafnframt háðulegum orðum um alla helstu ráðamenn þjóðarinnar á þessum tíma, nema einn. Össur Skarphéðinsson fær góða einkunn hjá Ólafi Ragnari.

Af Össuri er það annars helst að frétta að í vikunni kom hann í fréttir Sýnar til að ræða um stöðu Grænlands. Átti hann ekki nógu mörg orð til að hrósa skýrslu sem Guðlaugur Þór Þórðarson lét vinna um Grænland og fullgerð var fyrir fimm árum. Össur lét þess ógetið að hann var formaður starfshópsins sem skrifaði skýrsluna og Svarthöfða finnst athyglisvert hjá skýrsluhöfundinum að hrósa svo eigin verki án þess að gangast við því. Er honum þó vorkunn í þeim efnum því ekki verður betur séð en þverpólitísk samstaða sé um að skýrslan sé lítils virði og sama gildi um allar 100 tillögurnar sem skýrsluhöfundar settu fram. Í öllu falli hafa tvær ríkisstjórnir, sem samanlagt spanna nær allt pólitíska litrófið, kosið að láta skýrsluna rykfalla í stað þess að nota hana sem leiðarvísi um stefnumörkun gagnvart Grænlandi.

Svarthöfði er á því að aldnir stjórnmálarefir, sem haldnir eru Bandaríkja- og Trumpblæti, gerðu margt verra en að hlusta á og jafnvel lesa stórmerkilega ræðu sem Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, flutti í Davos í gær. Kannski dygði það til að íslensku öldungarnir átti sig á því að hlutirnir hafa sannarlega breyst og nýja valdaspilið í Washington er síður en svo eitthvert grín fyrir smáríki þessa heims. Svo vitnað sé í Dorothy í Galdrakarlinum í Oz: „Toto, I‘ve a feeling we‘re not in Kansas anymore.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Samfélagsmiðill fyrir sjálfstæða Íslendinga

Nína Richter skrifar: Samfélagsmiðill fyrir sjálfstæða Íslendinga
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Lokaorð læknisins

Óttar Guðmundsson skrifar: Lokaorð læknisins
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Nína Richter skrifar: AI spegill, herm þú mér, með áhuga á sjálfum sér

Nína Richter skrifar: AI spegill, herm þú mér, með áhuga á sjálfum sér
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Nína Richter skrifar: Þessi ógeðslegu skjöl

Nína Richter skrifar: Þessi ógeðslegu skjöl
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Meinið, meðulin og hliðarverkanir þeirra

Þorsteinn Pálsson skrifar: Meinið, meðulin og hliðarverkanir þeirra
EyjanFastir pennar
31.01.2026

Sigmundur Ernir skrifar: Nú skal sótt að kvenfrelsinu

Sigmundur Ernir skrifar: Nú skal sótt að kvenfrelsinu
EyjanFastir pennar
31.01.2026

Óttar Guðmundsson skrifar: Sr. Sæmi og skrattinn

Óttar Guðmundsson skrifar: Sr. Sæmi og skrattinn