fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Magnús Árni Skjöld Magnússon: Gerum eins og Svíar – förum inn í ESB með höfuðið hátt og til að hafa áhrif

Eyjan
Laugardaginn 10. janúar 2026 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar Svíar fóru inn í Evrópusambandið fóru þeir inn með þeim formerkjum að þeir ætluðu að beita sér fyrir því að ESB gerði stefnu Svíþjóðar í umhverfismálum að sinni. Þetta gekk að verulegu leyti eftir. Við Íslendingar ættum að fara inn til að hafa áhrif í t.d. sjávarútvegsmálum og jafnréttismálum, sviðu þar sem við stöndum feti framar en aðrir. Magnús Árni Skjöld Magnússon, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann að Bifröst og formaður Evrópuhreyfingarinnar, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Annað mál sem gæti fengið enn meiri umræður en Bókun 35. Utanríkisráðherra boðaði á dögunum að á þessu þingi eða komandi þingi, vorþinginu, þá kemur fram þingsályktunartillaga um að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við ESB.

„Ég hef engar athugasemdir við það að fólk hafi misjafnar skoðanir á því. Það getur alveg verið grundvallað á mjög gildum sjónarmiðum.“

Ertu þá að tala um afstöðu gagnvart þjóðaratkvæðagreiðslunni eða gagnvart gagnvart aðild?

„Bara hvoru tveggja því að það er auðvitað augljóst að það þarf auðvitað að vera vilji til þess að stíga skrefið inn í Evrópusambandið til þess að hefja aðildarviðræður að nýju. Það þarf auðvitað að vera vilji til að skoða hvaða kostir væru í því fyrir okkur Íslendinga. Ég tel að þeir séu augljósir og ég tel að þetta sé gott tækifæri fyrir okkur til þess að taka þá umræðu og koma því á framfæri hvað það er sem hugsanlega myndi vera fólgið í því fyrir okkur og hvaða stóra skref það væri í rauninni til þess að tryggja bara fullveldi þjóðarinnar að ganga þarna inn.

Við vorum að tala um Evrópureglur hérna áðan. Við auðvitað tökum við reglum sem eru mótaðar af Evrópusambandinu og flestar þeirra eru bara mjög vandaðar og hafa farið í gegnum mikið og gott ferli. Ferli sem er að mörgu leyti miklu vandaðra heldur en íslensk stjórnsýsla getur tryggt í kringum svona löggjöf. En við hins vegar höfum enga aðkomu að því að móta þetta. Það er að segja, ég og þú sem kjósendur kjósum engan sem kemur að því að móta þessa reglugerð. Þetta myndi breytast auðvitað ef við gengjum í Evrópusambandið. Þá væru auðvitað okkar fulltrúar við borðið þar sem að reglurnar eru mótaðar. Þeir myndu auðvitað ekki vera með kannski mikla aðkomu að öllu því sem gert er í Evrópusambandinu, en alveg klárlega aðkomu að því sem skiptir okkur máli.“

Já, andstæðingar aðildar Íslands að ESB hafa sagt: „Já, við fáum hvað, sex þingmenn, við erum bara brotabrot þarna inni.“ En það segir ekkert alla söguna vegna þess að það eru þingflokkar inni á Evrópuþinginu.

„Já, já, Evrópuþingið er bara einn af þeim aðilum sem koma að því að móta þessar reglur. Það er auðvitað framkvæmdastjórnin sem er svona frumkvæðisaðili …“

Og þar hefðum við einn fulltrúa eins og hvert hinna ríkjanna.

„Já, já, þó að hann sé í rauninni ekki fulltrúi síns ríkis, þá er hann það auðvitað að einhverju leyti samt. Hann er aðgengi að stjórnsýslunni og aðili sem þekkir til aðstæðna á Íslandi og svo framvegis. Einmitt, því hefur auðvitað verið gert að skóna að við myndum fá sjávarútvegskommissjóner sambandsins, allavega svona til að byrja með. Það er auðvitað skipt um það reglulega þannig að það myndi auðvitað ekki vera alltaf.“

Jú, jú, það róterar en ég man eftir því, það eru nú reyndar komin 15 ár síðan ég fór sem blaðamaður í kynningarferð til Evrópusambandsins. Og ég gerði mér far um einmitt að ræða um sjávarútvegsmálin við þá og það leyndi sér ekkert að Evrópusambandið horfir mjög til þess að fá Ísland inn vegna þess hve okkur hefur gengið vel til dæmis að gera veiðar sjálfbærar og að gera fiskveiðar að nokkurn veginn umhverfisvænni og sjálfbærri atvinnugrein.

„Á sínum tíma þegar Svíar voru að ganga í Evrópusambandið, þá töluðu þeir mikið um það að þeir ætluðu að fara þarna inn til þess að hafa áhrif og þeir hafa gert það. Þeir hafa haft sín áhrif á til dæmis umhverfismálin. Þeir voru mjög fókuseraðir á þau og sögðu bara, við ætlum að gera Evrópusambandið í okkar mynd þegar kemur að umhverfismálunum. Og þeir hafa lagt mikla áherslu á það og það hefur gengið vel. Evrópusambandið er núna, eins og við þekkjum, sennilega sá aðili, sennilega sú skipulagsheild í heiminum sem er hvað svona áköfust og einörðust í því að vinna að umhverfismálunum. Ég vil nú ekki tala um baráttuna gegn loftslagsbreytingum og allt það.

Ég held að við ættum líka bara að gera það að okkar markmiði að hafa áhrif þarna inni, horfa á styrkleika okkar til að mynda í þessum málum sem þú nefnir, sjávarútvegsmálum. Við getum haft þar mótandi áhrif á Evrópusambandið í ljósi bara okkar reynslu og þess sem við búum að. Annað svona mál eru auðvitað jafnréttismálin. Evrópusambandið er auðvitað tiltölulega framarlega í jafnréttismálum og leggur mikla áherslu á þau. Til að mynda, af því að ég er nú í akademíu, í öllum umsóknum um hérna og annað slíkt, þá er mikil áhersla á að það snerti á jafnréttismálum og að jafnrétti sé tryggt og að það sé ávarpað með einhverjum hætti þegar þú ert að skrifa umsókn. En ég held að við höfum alveg eitthvað þar að bjóða líka og mín skoðun er sú að við eigum bara að ganga inn þarna með höfuðið hátt og ákveðin í því að hafa þau áhrif til góðs sem að við getum haft.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Íris og Páll hætta bæði í Eyjum

Íris og Páll hætta bæði í Eyjum
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi