fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Eyjan
Föstudaginn 20. febrúar 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson á sér þann draum að verða borgarstjóri í Reykjavík. Hann hefur lengi haft mikinn áhuga á skipulagsmálum borga og varði námsárum sínum í ýmsum borgum víðs vegar að kynna sér þau mál. Um tíma átti hann sæti í Byggingarnefnd Reykjavíkur fyrir Framsóknarflokkinn meðan hann var í þeim flokki.

Nú gæti hann eygt möguleika á að láta draum sinn rætast. Miðflokkur Sigmundar er á miklu fylgisflugi um þessar mundir. Flokkurinn náði engum borgarfulltrúa kjörnum síðast en nú bendir allt til þess að hann komi mjög sterkur inn í komandi kosningum. Fylgi flokka sveiflast stundum mikið í borgarstjórn eins og Framsókn er besta dæmið um. Flokkurinn fékk engan mann kjörinn vorið 2018 en náði fjórum kjörnum borgarfulltrúum árið 2022. Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum stefnir í að Framsókn fái engan mann kjörinn í næstu kosningum þannig að sveiflur geta verið miklar.

Orðið á götunni er að Miðflokkurinn geti orðið einn af sigurvegurum næstu borgarstjórnarkosninga og gert kröfu um af fá borgarstjóraembættið í sinn hlut, til dæmi ef flokknum tekst að mynda meirihluta með Sjálfstæðisflokki og fleirum. Þá væri tilvalið að tefla Sigmundi Davíð fram sem borgarstjóraefni vegna þekkingar hans á borgarskipulagi og víðtækrar stjórnmálareynslu en Sigmundur hefur gegnt stöðu forsætisráðherra eins og flestir muna.

Á landsvísu hefur Miðflokkurinn verið að mælast með meira en 20 prósent fylgi á sama tíma og Samfylkingin hefur verið með 30 prósent og Sjálfstæðisflokkurinn rúm 15 prósent. Ekki er ósennilegt að fylgi þessara flokka á landsvísu muni endurspeglast talsvert inn í úrslit borgarstjórnarkosninganna í vor. Í ljósi þess gætu bæði Miðflokkur og Sjálfstæðisflokkur vænst þess að ná fimm borgarfulltrúum hvor – á góðum degi. Þeir þyrftu þá ekki mikið í viðbót til að geta myndað meirihluta í borginni undir styrkri stjórn Sigmundar Davíðs sem borgarstjóra.

Uppstillingarnefnd er að störfum hjá Sjálfstæðisflokknum og fundar stíft. Þar munu skoðanir vera mjög skiptar en Bessí Jóhannsdóttir, formaður Samtaka eldri sjálfstæðismanna, stýrir 15 manna nefndinni af mikilli festu. Innan nefndarinnar er tekist á um þær meginlínur að hreinsa nær alveg til á listanum eða halda í tvo núverandi borgarfulltrúa til viðbótar við Hildi Björnsdóttur en kynna að öðru leyti nýjan lista. Orðið á götunni er að ákveðið hafi verið að Brynjar Níelsson, fyrrum þingmaður flokksins, taki sæti á listanum. Barátta innan nefndarinnar mun vera mjög hörð um önnur sæti. Bessí nefndarformaður leggur áherslu á að Marta Guðjónsdóttir og Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir verði í líklegum sætum en ekki er einhugur um það.

Orðið á götunni er að einhverjir nefndarmann í uppstillingarnefndinni hafa hótað afsögn ef ekki næst samstaða um tiltekna skipan og Hildur Björnsdóttir er sögð mjög óróleg vegna stöðunnar. Ólíkir hópar innan flokksins takast hart á en klíkur hafa missterka stöðu eftir aldri, hverfum og stjórnmálareynslu. Eldri flokksmenn ráða miklu – óþægilega miklu að margra mati.

Orðið á götunni er að Sjálfstæðismenn séu mikið búnir að leita til þjóðþekktra einstaklinga eins og aðrir flokkar hafa gert með góðum árangri. Þá er átt við þekkt fólk úr sjónvarpi, íþróttamenn, listamenn og áhrifavalda en ekkert mun vera fast í hendi enn þá.

Stefnt er að því að listinn verði tilbúinn í byrjun mars. Spennan magnast.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar