fbpx
Laugardagur 31.maí 2025
EyjanFastir pennar

Svarthöfði skrifar: Fyrrverandi þingmaður gengur af göflunum – nýr þingmaður gengur fram af fólki

Svarthöfði
Föstudaginn 30. maí 2025 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svarthöfði getur ekki annað en haft áhyggjur af andlegri heilsu stjórnarandstöðunnar og helstu fylgifiska hennar þessa dagana. Taugaveiklunin skín úr hverju andliti þingmanna stjórnarandstöðunnar í hvert sinn sem þeir koma í pontu Alþingis til að deila um keisarans skegg undir liðnum fundarstjórn forseta eða fárast yfir því að ekki aðeins sé það lýðheilsumál og plasttappar fái að vera lausir á flöskum, það snúist hreinlega um líf og dauða í bráð og lengd.

Í gær benti Ólafur Þ. Harðarson, fyrrverandi stjórnmálaprófessor, á þá sjálfsögðu staðreynd í viðtali við fréttastofu RÚV að ríkisstjórnin verði á endanum að íhuga beitingu 2. mgr. 71. gr. þingskapalaga ætli stjórnarandstaðan að beita endalausu málþófi til að hindra framgang þingmála ríkisstjórnarinnar á borð við leiðréttingu veiðigjaldanna í trássi við vilja meirihluta Alþingis og vilja mikils meirihluta þjóðarinnar. Þetta ákvæði laganna heimilar að umræðum sé hætt eða ræðutími þingmanna takmarkaður.

Með öðrum orðum er þetta ákvæði þingskapalaganna beinlínis ætlað til að koma í veg fyrir því að minnihluti Alþingis geti rænt völdum af réttkjörnum meirihluta þingsins með tafaklækjum og kjaftæði.

Svarthöfði tók eftir því að einn fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins virðist hafa fengið alvarlegt andlegt áfall við að heyra þessi frómu orð stjórnmálafræðingsins. Sigurður Kári Kristjánsson, einn fjölmargra lögfræðinga Sjálfstæðisflokksins sem vermt hefur þingsæti um skemmri eða lengri tíma, nær hreinlega ekki upp í nefið á sér og segir Ólaf Þ. Harðarson hafa með þessu lagt til að þingmenn í stjórnarandstöðu verði sviptir málfrelsi sínu og beittir valdníðslu sem ógni rótum sjálfs lýðræðisins.

Eftir lestur facebookfærslu fyrrverandi þingmannsins telur Svarthöfði einsýnt að full ástæða sé fyrir þann ágæta mann að fara sem bráðast á upprifjunarnámskeið í stjórnskipunarrétti – eða hið minnsta æfa sig í að telja upp á tíu og ná stjórn á andardrættinum áður en hann geysist fram á ritvöllinn með staðlaus gífuryrði að vopni. Í öllu falli er athyglisvert að sjá að löglærður maðurinn virðist ekki alveg skilja að þingræði felur í sér að meirihluti þingsins hefur síðasta orðið um þingstörf en hvorki minnihlutinn né framkvæmdavaldið.

Svarthöfða finnst allrar athygli vert að Sjálfstæðismenn skuli sjá atlögu að lýðræðinu í því að ríkisstjórnarmeirihluti á Alþingi skuli vilja koma skikki á störf þingsins og tryggja framgang þeirra stefnumála sem kjósendur fólu sigurvegurum síðustu kosninga að hrinda í framkvæmd.

Vinnubrögð á Alþingi geta vissulega vegið að lýðræðinu í landinu, t.d. með því að grafa undan trausti almennings á þessari æðstu stofnun þjóðarinnar. Þetta hefur berlega komið í ljós að undanförnu þegar stjórnarandstaðan hefur stundað málþóf og tafir fyrir allra augum. Svarthöfði er þó fremur þeirrar skoðunar að með fíflagangi sínum á Alþingi grafi stjórnarandstaðan fyrst og fremst undan trausti á sér en ekki Alþingi í heild. Skoðanakannanir sem sína fylgistap stjórnarandstöðunnar og aukinn stuðning við ríkisstjórnina styðja við þá skoðun.

Svarthöfði telur að leitun sé að jafn snautlegri innkomu á stjórnmálasviðið og því þegar nýr þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Jón Pétur Zimsen, fyrrverandi skólastjóri, flutti langa og stórfurðulega þingræðu um hættuna af því að hafa plasttappa fasta við flöskur. Edda Björgvinsdóttir gerði þeirri ræðu betri skil en Svarthöfði treystir sér til að gera.

Eftir stendur að þessi nýi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem kemur á þing beint úr skólastjórastólnum, er nú orðinn samnefnari þess að Ísland hefur undanfarin ár húrrað niður lista í PISA-könnunum. Svarthöfði játar í hreinskilni að hafa spurt sjálfan sig þegar hann hlustaði á plasttapparæðu skólastjórans fyrrverandi hvort hugsanlegt sé að fleiri slíkir séu í skólunum að mennta börnin okkar. Von Svarthöfða og trú er að Zimsen sé fráviksatvik.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Enginn vill Werner
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Evrópuferð ríkisstjórnarinnar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Evrópuferð ríkisstjórnarinnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Kostnaðarsamt kjördæmapot

Kostnaðarsamt kjördæmapot
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Frá Brjánslæk til Brussel

Þorsteinn Pálsson skrifar: Frá Brjánslæk til Brussel
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Thomas Möller skrifar: Evrópa er á fleygiferð

Thomas Möller skrifar: Evrópa er á fleygiferð
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að flensa afturendann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að flensa afturendann
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Traust er undirstaða réttláts samfélags

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Traust er undirstaða réttláts samfélags
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Tómarúm fyllt

Þorsteinn Pálsson skrifar: Tómarúm fyllt
EyjanFastir pennar
30.04.2025

Thomas Möller skrifar: Borgum meira!

Thomas Möller skrifar: Borgum meira!