fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Eyjan

Guðni vitjaði grafar Grigol – „Mér þykir vænt um Ísafold eins og fjarlæga stjörnu eða fallegan draum“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 11. mars 2024 20:30

Mynd: Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Mér þykir vænt um Ísafold eins og fjarlæga stjörnu eða fallegan draum.“ Með þessum orðum kynnti ungur maður sig í bréfi til mín sumarið 1991. Hann bjó þá í Georgíu, landi sem fékk sjálfstæði við upplausn og hrun Sovétríkjanna síðar um árið,“ 

segir Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands í færslu á Facebook þar sem hann rifjar upp fyrstu kynni sín af Georgíumanninum og Íslandsvininum, en Guðni stundaði þá há­skóla­nám í Englandi. Þar kynntist hann hópi nemenda frá Georgíu sem þar voru í stuttri heimsókn. 

„Þau sögðu mér frá miklum Íslandsvini heima í Tbílísi, höfuðborg landsins. Hann hefði kennt sjálfum sér íslensku með lestri fornsagna og vildi framar öllu komast til Íslands. Ég sendi honum línu og nokkru síðar barst mér bréf frá Tbílísi. Bréfritarinn var Grigol Matchavariani og lýsti hann ást sinni á íslenskum sagnaarfi og menningu og allt skrifaði hann á fallegri en fornlegri íslensku. Meðal annars spurði hann um leiðir til að komast til Íslands, hann skyldi vinna við hvað sem er um leið og hann myndi þýða íslenskar og georgískar bókmenntir til að efla samband þjóðanna tveggja.

Ég heillaðist en vissi ekki alveg hvað gera skyldi. Ég ráðlagði Grigol þó að skrifa Velvakanda Morgunblaðsins og forsætisráðherra sem þá var Davíð Oddsson. Til að gera langa sögu stutta lét Davíð styðja Grigol til Íslandsferðar og reyndist hann happafengur, eignaðist hér marga vini og sat svo sannarlega ekki auðum höndum, þýddi verk af miklum móð. En svo kom reiðarslag. Í ferð heim til Tbílísi árið 1996 var ekið á hann á götu úti og varð það honum að aldurtila.“

Mæðgurn­ar Irma og Tam­ar Matchavari­ani fluttu til Íslands eftir andlát Grigol, en Tamar var á sjötta ári þegar faðir hennar lést, eins og segir í frásögn Mbl.is árið 2017.

Vitjaði grafar Grigol 

Guðni var í opinberri heimsókn til Georgíu í síðustu viku. „Vitjaði ég grafar Grigols og lagði íslenskt sjávargrjót að legstein hans. Mér þótti vænt um að geta þannig heiðrað minningu þessa ljúfa manns, útlendings sem elskaði Ísland og bætti okkar samfélag þegar hans naut við. Sama gerðu og gera kona hans og dóttir, Irma og Tamar, sem búa enn hér á landi. Og við njótum starfa Grigols Matchavariani, þýðinga og skrifa sem tengja þessi tvö smáríki saman, Ísland og Georgíu.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Jarðarfararblús

Óttar Guðmundsson skrifar: Jarðarfararblús
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Vilja gera Snæfellsjökul að forseta Íslands

Vilja gera Snæfellsjökul að forseta Íslands
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Hallgrímur vandar Katrínu ekki kveðjurnar- „Er einhver munur á VG og XD?“

Hallgrímur vandar Katrínu ekki kveðjurnar- „Er einhver munur á VG og XD?“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?