fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Eyjan

Nikki Haley segist ekki „vilja vera númer tvö“

Eyjan
Mánudaginn 22. janúar 2024 06:30

Nikki Haley. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nikki Haley, sem sækist eftir að verða forsetaframbjóðandi Repúblikana í haust, var skýrmælt á kosningafundi í New Hampshire á föstudaginn. Þar gerði hún fundargestum alveg ljóst að hún hefur ekki í hyggju að verða varaforsetaefni Donald Trump ef hann verður forsetaframbjóðandi Repúblikana.

Repúblikanar í New Hampshire eru almennt mun hófsamari en samflokksmenn þeirra í öðrum ríkjum og reyndi Haley að taka sér stöðu fjarri Trump þegar hún ræddi við fundargesti.

Haley, sem var sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum í forsetatíð Trump, hefur lengi sagt að hún „vilji ekki vera númer tvö“ og á föstudaginn sagði hún að hún hafi ekki í hyggju að verða varaforsetaefni Trump eða annarra.

„Ég vil ekki vera varaforseti neins. Það er ekki í dæminu,“ sagði hún að sögn Politico og Washington Post. „Ég hef alltaf sagt þetta. Þetta er spil, sem þeir spila, sem ég vil ekki spila. Ég vil ekki vera varaforseti,“ sagði hún.

Forval fer fram í New Hampshire á þriðjudaginn og velja þá bæði Repúblikanar og Demókratar þá sem þeir vilja sem forsetaefni sitt.

Forvalið í New Hamsphire gæti laðað fleiri miðjusækna kjósendur að sér en í öðrum ríkjum. Þetta eru kjósendur sem líkar ekki við orðræðu Trump, sem verður sífellt líkari því sem einræðisherrar láta sér um munn fara, né tilraunir hans til að láta ógilda úrslit forsetakosninganna 2020.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum