Umdeildur stigi sem byggður hefur verið á milli efra og neðra Breiðholts kostaði 36 milljónir króna. Þetta kemur fram í færslu hjá Kolbrúnu Baldursdóttur, oddvita Flokks Fólksins, en hún lagði fram fyrirspurn um málið í umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar í gær.
Íbúar í Breiðholti eru margir hverjir afar ósáttir við „járnbáknið“, sem þeir segja mikið lýti á skóginum, og kvarta undan samráðsleysi og skorti á grenndarkynningu.
Engu að síður var stiginn meðal vinsælustu verkefnanna sem kosin voru til framkvæmda af íbúum Reykjavíkur á vegum samráðsverkefnis Reykjavíkur við íbúa árið 2021. Hann er byggður með það í huga að geta verið í notkun allt árið um kring og segir verkefnastjóri að stiginn muni með tíð og tíma falla betur inn í landslagið.