Halldór Benjamín Þorleifsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA), hefur verið mikið í umræðunni undanfarið vegna kjaradeilu SA og Eflingar. Nú hefur miðlunartillaga verið samþykkt í deilunum og því kominn kjarasamningur.
Halldór vakti þó athygli á Twitter fyrir eitthvað allt annað í gær. Fyrir það hvernig hann stóð á meðan tekið var við hann viðtal.
Grafíski hönnuðurinn Arnór Bogason birti myndband og spurði: „Jæja. Hvað er í gangi? Ég er í alvörunni forvitinn, er þetta bara svona þægileg staða?“
Jæja. Hvað er í gangi? Ég er í alvöru forvitinn, er þetta bara svona þægileg staða? @HalldorBenjamin pic.twitter.com/GE2UCebGDO
— Arnór Bogason (@arnorb) March 9, 2023
Ekki stóð á viðbrögðunum við tístinu.
Sveinn Birkir Björnsson, forstöðumaður markaðssamskiptasviðs hjá Íslandsstofu, segir að þetta eigi sér einfalda skýringu.
„Þetta heitir fagleg vinnubrögð og er kennt í bæði námi í fréttamennsku og væntanlega í allri fjölmiðlaþjálfun. Þetta er til að viðmælendur séu sem næst því að vera í augnhæð og í réttu angle við myndavélina. Það er fyrst og fremst óþægilegt fyrir áhorfandann þegar það er ekki“
Fjölmiðlakonan Margrét Erla Maack tekur undir þetta og segir að fjölmargar sambærilegar myndir séu til af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, þingmanni Miðflokksins. „Þetta er til að horfa ekki niður á fréttamann, sem er aðeins lægri en Halldór Benjamín.“
Aðrir deildu myndum af sambærilegum aðstæðum.
@RanieNro reif gallabuxurnar þennan dag. pic.twitter.com/heM2l28bKD
— Ólafur Jónsson (@olafurasgeir) March 9, 2023
Í sumum viðtölum viltu ekki vera hærri en viðmælandinn og tökumaður. Þekkt aðferð. pic.twitter.com/OGaEYHeFtA
— Bjarni Þór Pétursson (@bjarnipeturs) March 9, 2023
Hann @alfredjohanns er vel á þriðja metra en þaulvanur í viðtölum og veit hvernig á að líta vel út. pic.twitter.com/QsKwcdyCGV
— Guðmundur Karl Sigurdórsson (@dullari) March 9, 2023
Það sem mörg hér segja: pic.twitter.com/eiNxO22hUa
— Olga Björt (@olgabjort72) March 9, 2023
Viktor Valgarðsson stjórnmálafræðingur segir að um algenga „pósu“ sé að ræða.
„Þetta er mjög algeng pósa hjá PR og stjórnmálafólki og svona sem fara mikið í fjölmiðla, lúkkar auðvitað kjánalega þegar fæturnir sjást en held þetta eigi að tryggja gott jafnvægi og svona valdapósu án þess að vera erfitt eða lúkka óeðlilega í mynd.“
Pétur Maack, sálfræðingur, er svo með beiðni til sjónvarpsfrétta bæði RÚV og Stöðvar 2.
„Viljið þið senda lágvaxnasta fólkið ykkar næst þegar þarf að fá soundbite frá Halldóri Benjamín. Mig langar til að sjá hversu langt niður hann kemst áleiðis í spígat.“