fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Eyjan

Segja að húsnæði Flataskóla hafi verið „tifandi tímasprengja“

Eyjan
Þriðjudaginn 17. janúar 2023 20:30

Þorbjörg Þorvaldsdóttir og Ingvar Arnarson með Flataskóla í bakgrunni - Myndin er samsett

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Skýrslan sem hvarf“ er yfirskriftin á pistli sem Þorbjörg Þorvaldsdóttir og Ingvar Arnarson, bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans, í Garðabæ skrifa en pistillinn birtist á Vísi í dag. Pistillinn fjallar um myglu og rakaskemmdir í skólum bæjarins en þau Þorbjörg og Ingvar segja að vitað hafi verið af vandamálunum í langan tíma – þau hafi komið fram í umræddri skýrslu „sem hvarf.“

Síðastliðið haust lagði Garðabæjarlistinn fram ítarlega fyrirspurn um viðbrögð og forvarnir bæjarins við raka- og mygluskemmdum. Fyrirspurnin var lögð fram í kjölfar þess að jarðvegssveppur fannst í Miðgarði, nýju íþróttahúsi bæjarins. „Frá því að þessi fyrirspurn var lögð fram hefur mygla fundist bæði í Flataskóla og Hofsstaðaskóla og í allt haust hefur bæjarstjóri lagt mikla áherslu á skjót viðbrögð ásamt virku og góðu upplýsingaflæði til allra hlutaðeigandi. Samkvæmt okkar bestu vitneskju hefur því verklagi verið fylgt nokkuð vel og bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans hafa ítrekað hrósað bæjarstjóra og starfsfólki bæjarins fyrir góða frammistöðu í erfiðum málum,“ segja bæjarfulltrúarnir í pistlinum en síðan komu nýjar upplýsingar í ljós sem þau áttu ekki von á.

„Það kom okkur því verulega á óvart að fá skyndilega upplýsingar um skýrslu EFLU verkfræðistofu sem gerð var um Flataskóla fyrir þremur og hálfu ári síðan, eða sumarið 2019. Skýrsla sem bæjarfulltrúar höfðu aldrei séð,“ segja Þorbjörg og Ingvar.

Samkvæmt þeim kemur fram í umræddri skýrslu að það þurfi að ráðast í frekari sýnatöku og aðgerðir til að laga rakaskemmdir í flataskóla. Þau segja ummerki um slíkar skemmdir hafa fundist víða í skólanum ásamt vísbendingum um myglu í loft- og DNA-sýnum. „Þetta hljóta að vera upplýsingar sem hefðu átt að berast til fólks sem ver stórum hluta ársins innandyra í viðkomandi húsnæði. Það skýtur því skökku við að aðstandendur barna og starfsfólk Flataskóla hafi nú fyrst fengið aðgang að skýrslu um rakaskemmdir í skólanum sem hafa verið viðvarandi í að minnsta kosti þrjú og hálft ár,“ segja bæjarfulltrúarnir.

„Eins og áður kom fram var bæjarfulltrúum Garðabæjarlistans ekki kunnugt um skýrslu EFLU fyrr en nú um miðjan janúar 2023. Að okkar mati er grafalvarlegt að skýrsla og úttekt sem óskað var eftir og gerð fyrir bæinn vor og sumar 2019 og sem segir frá niðurstöðum sem hafa augljós áhrif á hagsmuni skólabarna og starfsfólks bæjarins hafi ekki ratað á borð bæjarstjórnar eða bæjarráðs. Hvernig má það vera? Það hljóta að vera skilyrðislausir hagsmunir bæjarbúa að bæjarstjórn sé haldið upplýstri um ástand bygginga bæjarins og að aðhald með framkvæmdum sé þannig til staðar.“

Húsnæði skólans „tifandi tímasprengja“

Þorbjörg og Ingvar segja að þrátt fyrir að breytingar hafi verið gerðar á verklagi sveitarfélaga og áhersla á upplýsingagjöf hafi fengið meira vægi í Garðabæ og annars staðar þá breytir það því ekki að starfsfólk skólans og nemendur hans hafa mætt í vinnuna árum saman frá því niðurstöður skýrslunnar voru ljósar. Þau segja að Garðabæ hafi mátt vera kunnugt að húsnæði skólans væri „tifandi tímasprengja.“

„Í ljósi úttektarinnar sem við vitum nú af mátti Garðabæ vera kunnugt að húsnæði Flataskóli væri tifandi tímasprengja og að bregðast hefði þurft við um leið. Rétt eins og starfsfólk Flataskóla segir í ályktun sinni frá 11. janúar síðastliðinn þá er ljóst að Garðabær hefur einfaldlega brugðist í þessu máli.“

„Við þurfum að læra af þessu máli og gera betur“

Bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans ætla sér að óska formlega eftir upplýsingum um ferli umræddrar skýrslu. „Hverjir vissu af henni og af hverju var ekki sagt frá efni hennar?“ spyrja þau í pistlinum.

„Það er með ólíkindum að foreldrafélag Flataskóla hafi þurft að nálgast þessa skýrslu eftir krókaleiðum og að bæjarfulltrúar fái í kjölfar þess í fyrsta sinn veður af opinberu skjali. Eins er ekki auðvelt út frá því minnisblaði sem fylgdi umfjöllun um stöðuna í bæjarráði í morgun að sjá nákvæmlega til hvaða aðgerða hefur verið gripið á grundvelli þessarar tilteknu skýrslu. Við munum því óska eftir nánari útlistun í bæjarstjórn á fimmtudag.“

Búið er að hefja aðgerðir til að takast á við mygluna í Flataskóla og búið er að gera nýja heildarúttekt. Þorbjörg og Ingvar segja að sem betur fer hafi umtalsvert fjármagn verið eyrnamerkt viðhaldi og framkvæmdum við skólabyggingar í fjárhagsáætlun ársins 2023. „Nú dugir ekkert annað en tafarlausar aðgerðir til þess að tryggja heilsu fólks og byggja síðan aftur upp traust starfsfólks og foreldra í Garðabæ, því á því byggjast góð samfélög. Við þurfum að læra af þessu máli og gera betur,“ segja þau.

„Okkur finnst skipta miklu máli að Garðabær eigi inni fyrir því trausti sem við þurfum að standa undir sem stjórnvöld. Við, bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans, teljum því að fyrsta skrefið fyrir okkur sem sitjum í bæjarstjórn sé að afla allra upplýsinga um málið, gera kröfu um að ekkert sé dregið undan og biðjast afsökunar. Ábyrgðin er á endanum okkar. Rýna þarf í ferli skýrslunnar og koma þannig í veg fyrir að sambærileg atvik geti komið upp aftur.“

Að lokum segja þau að Garðabæjarlistinn vonist til þess að fá greinargóð svör við fyrirspurnum sínum um málið. „Við munum að sjálfsögðu fylgja henni eftir með þéttu aðhaldi í þágu allra bæjarbúa.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum