fbpx
Fimmtudagur 12.desember 2024
Eyjan

Segir þingkonur enn verða fyrir áreitni bak við tjöldin – Siðareglurnar „bitlaus verkfæri“

Eyjan
Þriðjudaginn 3. janúar 2023 14:30

Gísli Rafn Ólafsson, Píratatar Alþingi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gísli Rafn Ólafsson, þingmaður Pírata, segir að þingkonur á Íslandi séu enn að verða fyrir áreitni og niðurlægjandi athugasemdum frá þingmönnum, ráðherrum og embættismönnum á bak við tjöldin.

Gísli vekur athygli á þessu í pistli sem hann ritaði hjá Vísi.

„„Það má ekkert lengur” er yfirskrift átaks sem starfsendurhæfingarsjóðurinn VIRK setti í loftið nú á haustmánuðum til þess að vekja athygli á þeirri skekkju sem felst í slíkum hugsunar­hætti og af­vopna þau sem nota hann til þess að af­saka og við­halda rót­gróinni mis­beitingu valds á vinnu­stöðum.“

Hvenær varð það allt í lagi?

Gísli segir að of lengi hafi tíðkast innan stjórnmála hér á landi að valdi sé misbeitt og að stjórnmálamenn líti sem svo á að þeir séu hafnir yfir þau „siðferðislegu viðmið sem samfélagið hefur sett“.

„Hvenær varð það allt í lagi að ráðherrar viðurkenndu að hafa brotið lög, en þyrftu samt ekki að sæta ábyrgð? Hvenær varð það allt í lagi að ráðherrar ættu skúffufélög í skattaskjólum og greiddu ekki skatta? Hvenær varð það allt í lagi að tala illa um samstarfsfélaga og fólk í jaðarhópum og nota áfengisdrykkju sem afsökun? Hvenær varð það allt í lagi að embættismenn og ráðherrar gætu haldið að sér gögnum um misbeitingu valds kollega sína án þess að þurfa að birta þau? Hvenær varð það allt í lagi að selja ættingjum sínum ríkiseignir á gjafverði og skella svo skuldinni á einhvern annan?“ 

Enn áreitt bak við tjöldin

Gísli segir að dæmin séu endalaus og virðist oft sem að það nægi fyrir viðkomandi að þegja og loka sig af í smástund þar til fjölmiðlar fara að elta næsta skandal. Þá sé allt gleymt og grafið og viðkomandi stjórnmálamaður geti haldið áfram ótrauður.

„Einstaka sinnum er einhverjum misboðið og stjórnarsamstarfið springur, en undanfarin ár hafa sýnt okkur að þolmörkin til þess að sprengja ríkisstjórnina hafa bara aukist – því vald er mikilvægara en gott siðferði.“ 

Gísli segir að á bak við tjöldin séu þingkonur enn að verða fyrir áreitni og niðurlægjandi athugasemdum „frá þingmönnum, ráðherrum og embættismönnum.“

„Áreitnin er ekki eins opinská og líkamleg og fyrir #metoo byltinguna, en lifir þó enn góðu lífi. Á sama tíma er hatursorðræðan sem blossar á samfélagsmiðlum þungur baggi á þeim sem eru nýlega byrjuð í stjórnmálum og hafa ekki áður orðið fyrir slíkum árásum“ 

Siðareglurnar bitlaus verkfæri

Gísli minnir á að innan Alþingis gildi siðareglur. En það séu reglur í orði en ekki á borði og í reynd frekar bitlaus verkfæri.

„Fyrsta skiptið sem mál fór alla leið í því ferli var þegar þær voru notaðar sem pólitískt vopn, en ekki til þess að taka á alvarlegum siðferðislegum brotum þingmanna og ráðherra. 

Við hljótum öll að gera þær kröfur til þeirra sem gegna þessum trúnaðarstöðum fyrir þjóðina að þeir sem hegða sér á þennan hátt sæti ábyrgð fyrir gjörðir sínar, ekki bara af því að „það má ekkert lengur“, heldur af því þetta hefur aldrei mátt.“ 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Óttinn við stjórnarmyndun valkyrja fer vaxandi hjá valdaöflum – brýnt að fram fari úttekt á slæmri stöðu þjóðarbúsins

Orðið á götunni: Óttinn við stjórnarmyndun valkyrja fer vaxandi hjá valdaöflum – brýnt að fram fari úttekt á slæmri stöðu þjóðarbúsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Furðulegt kosningakerfi

Óttar Guðmundsson skrifar: Furðulegt kosningakerfi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Skiptar skoðanir á hversu stjórntækur Flokkur fólksins er

Skiptar skoðanir á hversu stjórntækur Flokkur fólksins er
Eyjan
Fyrir 1 viku

Baldur rýnir í kosningaúrslitin – Einn af fjórflokkunum datt af þingi og Píratar fengu sömu örlög og allir nýir flokkar

Baldur rýnir í kosningaúrslitin – Einn af fjórflokkunum datt af þingi og Píratar fengu sömu örlög og allir nýir flokkar