fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Sandra ráðin vefstjóri Póstsins

Eyjan
Föstudaginn 2. september 2022 11:43

Sandra Ósk Sigurðardóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sandra Ósk Sigurðardóttir hefur tekið við stöðu vefstjóra hjá Póstinum. Hún mun hafa yfirumsjón með stefnu vefþróunnar og leiða verkefni sem tengjast stafrænni upplifun og þjónustu við viðskiptavini.

Sandra kemur til Póstsins frá PLAY þar sem hún gengdi stöðu forstöðumanns stafrænnar þróunnar. Áður starfaði hún sem vefstjóri WOW air og Primera Air. Sandra er með B.Sc. í viðskiptafræði og hefur víðtæka reynslu af stefnumótun og stýringu stafrænna verkefna.

„Það hefur verið gaman að fylgjast með Póstinum síðastliðin ár bregðast við breyttu viðskiptaumhverfi, innkomu samkeppnisaðila og áskorunum í COVID til að mæta þörfum viðskiptavina í nýju umhverfi. Ég hlakka til að taka þátt í áframhaldandi framþróun þar sem áhersla er lögð á upplifun viðskiptavina. Það eru stór tækifæri til aðgerða til að bæta við nýjum þjónustum og besta þær sem fyrir eru komnar. Ég hef sterka sýn á að viðskiptavinurinn eigi að vera þungamiðjan í allri þróun með einfaldleika og gagnsæi að leiðarljósi. Og ekki skemmir fyrir þegar manni tekst að skapa litlar, óvæntar ánægjustundir sem létta fólki lífið. Þetta passar vel við framtíðarsýn og gildi Póstsins,“ segir Sandra Ósk.

 

,,Reynslan og þekkingin sem Sandra kemur með inn í Póstinn er gríðarlega verðmæt. Að vinna með svona reynslumiklum leiðtoga líkt og Sandra er, með hennar sterku sýn á vefstjórn og stafræna upplifun og hæfnina til að nýta á strategískan hátt eru forréttindi. Sandra mun gegna lykilhlutverki í áframhaldandi vegferð Póstsins hvað varðar uppbyggingu stafrænna lausna og þjónustu. Hún kemur sterk inn í þau stóru verkefni sem framundan eru, mikilvægur liðsstyrkur á spennandi tímum,“ segir Ósk Heiða Sveinsdóttir, forstöðumaður þjónustu og markaða hjá Póstinum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Birgir í klemmu

Orðið á götunni: Birgir í klemmu
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ásdís Rán segist hafa verið óskipaður sendiherra Íslands

Ásdís Rán segist hafa verið óskipaður sendiherra Íslands
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Skuldsetning fasteignafélaga – þetta er eins og að snúa herskipi á andapolli

Guðjón Auðunsson: Skuldsetning fasteignafélaga – þetta er eins og að snúa herskipi á andapolli
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Rétthugsun?

Óttar Guðmundsson skrifar: Rétthugsun?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sandkorn: Hversu margar undirskriftir teljast nægjanlega margar undirskriftir?

Sandkorn: Hversu margar undirskriftir teljast nægjanlega margar undirskriftir?