fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Eyjan

Helga Vala segir sögur af andláti sínu vera „stórlega ýktar“

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 1. júní 2022 12:45

Helga Vala Helgadóttir. Mynd/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Líneik Anna Sævarsdóttir, annar varaforseti Alþingis, fipaðist nokkuð í forsetastólnum á Alþingi um klukkan 23:30 í gærkvöldi. „Háttvirtur þingmaður er fallin frá,“ sagði Líneik og var þá að tala um Helgu Völu Helgadóttur, þingflokksformann Samfylkingarinnar.

Það leið ekki langur tími þar til Líneik gerði sér grein fyrir mistökum sínum en þá leiðrétti hún sig. „Þá frá orðinu,“ sagði hún og hló sjálf. Fjöldi þingmanna í þingsalnum hló svo í kjölfarið með henni að þessum mistökum.

Vísir birti klippu á vef sínum af þessu atviki en Helga Vala endurbirti klippuna á Facebook-síðu sinni. „Sögur af andláti mínu eru stórlega ýktar,“ segir Helga Vala svo í færslunni.

Hér fyrir neðan má sjá klippuna sem um ræðir:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum