Í lok mars tóku mörg hótel þá ákvörðun að loka tímabundið og voru alls 75 hótel lokuð í aprílmánuði. Framboð gistirýmis minnkaði um 44,6% frá apríl 2019, mælt í fjölda hótelherbergja, sem skýrist af lokununum. Herbergjanýting á hótelum í apríl 2020 var 3,5% og dróst saman um 45,7 prósentustig frá fyrra ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofu Íslands.
Gistinætur á hótelum í apríl síðastliðnum voru 9.200 sem er fækkun um 97% frá sama mánuði árið áður. Um 32,7% gistinátta á hótelum voru skráð á erlenda ferðamenn eða 3.000, en gistinætur Íslendinga voru 6.200 eða 67,3%.
Á 12 mánaða tímabili, frá maí 2019 til apríl 2020, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 4.065.000 sem er 9% fækkun miðað við sama tímabil árið áður.
Heildarfjöldi greiddra gistinátta í apríl síðastliðnum dróst saman um 96% samanborið við apríl 2019. Þar af fækkaði gistinóttum á hótelum um 97% og um 93% á gistiheimilum. Þá var 93% fækkun á öðrum tegundum gististaða (farfuglaheimilum, orlofshúsum o.s.frv.).
Greiddar gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum voru um 20.800 í apríl en þær voru um 519.000 í sama mánuði árið áður. Um 68% gistinátta voru skráðar á Íslendinga, eða um 14.200, en um 32% á erlenda gesti eða um 6.600 nætur. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 13.500, þar af 9.200 á hótelum. Gistinætur á öðrum tegundum gististaða voru um 7.300.
Skyndileg fækkun brottfara frá Keflavíkurflugvelli olli því að ekki náðist að safna úrtaki fyrir framkvæmd landamærarannsóknar Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands í apríl. Af þeim sökum reyndist ekki unnt að áætla fjölda gistinátta erlendra ferðamanna utan hefðbundinnar gistináttaskráningar í apríl, þ.e. á stöðum sem miðla gistingu gegnum Airbnb og svipaðar síður, í bílum utan tjaldsvæða eða innandyra þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu. Ráðgert er að hefja áætlun á gistinóttum erlendra ferðamanna utan hefðbundinnar gistináttaskráningar að nýju þegar framkvæmd landamærarannsóknar kemst aftur í fyrra horf.