Hiti virðist vera að færast í pólitíkina enda aðeins tvær vikur í þingsetningu. Ljóst er að komandi þing er síðasta þingár ríkisstjórnarinnar fyrir kosningar, en Katrín Jakobsdóttir hefur gefið það út að hún stefni á að boða til kosninga haustið 2021. Mörg stór mál úr stefnuskrá ríkisstjórnarinnar eru enn ókláruð, enda riðlaðist dagskrá nýliðins þings töluvert vegna útbreiðslu COVIDfaraldursins í upphafi árs
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, hefur greinst með COVID-19. Hann kveðst þó vera við ágætis heilsu en er kominn í einangrun. Alþingi kemur ekki saman fyrr en 1. október svo aðrir þingmenn þurfa ekki að sæta sóttkví.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir þingmaður sagði sig úr þingflokki Vinstri grænna á fimmtudag. Ástæðan er málefni egypsku fjölskyldunnar sem vísa átti úr landi á miðvikudag. En Rósa var óánægð með að flokkur hennar hefði ekki beitt sér fyrir því að fjölskyldan fengi dvalarleyfi á Íslandi.
Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, átti ekki orð í vikunni vegna framgöngu Dóru Bjartar Guðjónsdóttur, oddvita Pírata, á borgarstjórnarfundi um meinta mútuþægni Eyþórs Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokks. Sagði hún að sér væri óglatt yfir ummælum Dóru og gekk af fundi borgarstjórnar á þriðjudag.
Helga Vala Helgadóttir tilkynnti í vikunni að hún hygðist bjóða sig fram til varaformanns Samfylkingarinnar. Heiða Björg Hilmisdóttir er núverandi varaformaður og hefur ekki gefið neitt til kynna um að hún hyggist hætta. Því má fastlega búast við að slegist verði um varaformannsstöðuna á komandi landsfundi.
Hart var tekist á um brottvísun egypsku barnafjölskyldunnar sem fara átti fram á miðvikudaginn á samstöðufundi á Austurvelli á þriðjudaginn. Hrópuðu mótmælendur meðal annars „Áslaug Arna, martröð barna“. Lögmaður fjölskyldunnar sagði í viðtali við DV að hann teldi afskiptaleysi Áslaugar vera þrælpólitískt í eðli sínu og væri til þess fallið að „stöðva blæðingu“ fylgis Sjálfstæðisflokks til Miðflokksins.
Benedikt Jóhannesson, fyrrverandi formaður Viðreisnar, ætlar að sækjast eftir að leiða lista Viðreisnar í einhverju kjördæmi á Suðvesturhorni í næstu þingkosningum. Hann segir þó ekki að hann sé að fara gegn Þorgerði Katrínu Gunnarsdót tur, formanni flokksins, og segir þau eiga í ágætis samstarfi.