Varað er við áformum um Borgarlínu í Staksteinum Morgunblaðsins í dag. Segir höfundur að hún komi til með að kosta óheyrirlegar fjárhæðir og búast megi við miklum framúrkeyrslum. Vitnað er til orða Þórarins Hjaltasonar umferðarverkfræðins. Segir hann hægt að fara mun hagkvæmari leiðir til að laga umferðina:
„Áætlaður kostnaður við fullgerða borgarlínu er 70 milljarðar kr. Ódýrt hraðvagnakerfi upp á 15-25 milljarða kr. myndi gera nánast sama gagn og valda mun minni umferðartöfum á framkvæmdatíma. Í samgönguáætlunum fyrir borgarsvæði af svipaðri stærð og höfuðborgarsvæðið er sjaldgæft að gert sé ráð fyrir umfangsmiklu sérrými fyrir hraðvagna.“
Staksteinar spá því að enginn árangur verði af lagningu Borgarlínu, einungis óheyrilegur kostnaður.