fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Eyjan

Ole segir það alvarleg mistök að hafa látið WOW air falla – Spyr hvort oddvitar ríkisstjórnarinnar séu eftirsóttir í stjórnir fyrirtækja

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 13. júní 2019 07:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í grein sem Ole Anton Bieltvedt, alþjóðlegur kaupýslumaður og stjórnmálarýnir, skrifar í Fréttablaðið í dag segir hann að það hafi verið alvarleg mistök hjá ríkisstjórninni að láta WOW air falla og fara í gjaldþrot. Í greininni, sem ber heitið Alvarlegur feill ríkisstjórnarinnar að láta WOW falla, veltir hann því upp hvort oddvitar ríkisstjórnarinnar séu  eftirsóttir í stjórnir fyrirtækja og almennt vel til þess fallnir að stýra rekstri stærsta fyrirtækis landsins, ríkisins.

Í upphafi greinarinnar vitnar Ole í ævisögu Helga Magnússonar athafnamanns og leggur út af þeirri tilvitnun:

„„Mér hefur sýnst að þeir sem hafa reynslu af rekstri fyrirtækja nálgist oft störf sín í stjórnum með öðrum hætti en hinir. Það er mikilvæg reynsla að hafa þurft að bera ábyrgð á daglegum rekstri eins og að hafa fólk í vinnu, tryggja að tekjur séu meiri en útgjöld, eiga fyrir launum um mánaðamót, eiga fyrir virðisaukaskatti og öðrum opinberum gjöldum á réttum tíma …“ Án þessarar eigin reynslu, telur Helgi, að menn hafi ekki mikið til málanna að leggja í stjórn stærri fyrirtækja og samtaka, og, að góðir vitsmunir og há menntun dugi ekki ein og sér. Undirritaður og sennilega ýmsir aðrir, sem við stjórnun og fyrirtækjarekstur hafa fengizt, munu taka undir þetta.“

Segir Ole og víkur því næst að stærsta fyrirtæki landsins og oddvitum ríkisstjórnarinnar og sendir föst skot á Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra:

„Stærsta fyrirtæki landsins er íslenzka ríkið. Þeir þrír, sem þar eru helzt í fyrirsvari, eru bókmenntafræðingur, lögfræðingur og dýralæknir; allt gott fólk og fært á sínu sviði – með meiri eða minni reynslu úr stjórnmálum – en aldeilis reynslu- og kunnáttulítið í stjórnun og rekstri fyrirtækja, nema þá helzt lögfræðingurinn, sem þó virðist hafa lent í nokkrum sviptingum og áföllum í sinni aðkomu að rekstri. Hann er reyndar ekki einn um það.”

Hann veltir því síðan fyrir sér hvort einhver af stærri fyrirtækjum landsins hafi óskað sérstaklega eftir setu oddvitanna í stjórnum sínum og segir að svona virki lýðræðið oft, það sé ekki alltaf skilvirkt.

„Í augum undirritaðs voru það mikil grundvallarmistök ríkisstjórnarinnar að láta WOW fara í gjaldþrot. Víðtækar og alvarlegar af leiðingar gjaldþrotsins koma betur og betur í ljós. Það er gott að vera vitur eftir á, kunna menn að segja, en það á ekki við hér; þetta mikla og alvarlega bakslag, í hinu margvíslegasta formi, var fyrirfram augljóst og óhjákvæmilegt.”

Segir Ole og bætir við:

„Eitt er brottfall starfa hjá WOW og þjónustuaðilum þeirra, um 2.500 manns, sem er feikilegur hlutfallslegur fjöldi hér – jafngildir 42.000 manns í Danmörku og yfir 580.000 manns í Þýzkalandi – en flest þetta fólk fer úr því að vera gildir skattgreiðendur í það að verða atvinnuleysisbótaþegar; tvöföld neikvæð áhrif. Annað eru hin víðtæku óbeinu, neikvæðu áhrif, sem í lok dags munu ná til flestra króka og kima samfélagsins, en við vorum komin á það stig með ferðaþjónustuna, að hún stóð undir um helmingi gjaldeyristekna þjóðarinnar, og WOW flutti nær þriðjung allra ferðamanna til landsins.“

Segir hann og bendir á að ferðamönnum geti fækkað úr um 2,5 milljónum á þessu ári niður í um 2 milljónir vegna falls WOW.

„Miðað við, að 2,5 milljónir ferðamanna skili um 500 milljörðum í gjaldeyristekjum, gætu gjaldeyristekjur vegna brottfalls WOW kostað þjóðarbúið 100 milljarða á 12 mánaða skeiði.

Þetta segir hann að muni valda mikilli tekjuskerðingu hjá aðilum í ferðaþjónustunni og tengdum greinum.

„Starfsmenn þessara greina munu hafa minna úr að spila og þar með greiða minni skatta, kaupa minni þjónustu og varning, sem aftur rýrir tekjur af virðisaukaskatti, benzíni, áfengi, o.s.frv. Mátti öllum vera fyrirfram ljóst – ekki sízt ríkisstjórninni – að úr falli WOW yrði mikill og víðtækur efnahagslegur vítahringur, sem myndi ná – beint eða óbeint – til flestra landsmanna.“

Segir Ole og segir að viðkvæði ríkisstjórnarinnar hafi verið að ekki ætti að nota skattfé til að bjarga einkafyrirtæki.

„Það er gott að hafa prinsipp, en hvert eitt mál hefur sína sérstöðu, og verður að skoðast skv. því. Alhæfingar eru hættulegar. Menn get sagst stefna norður, og staðið við það, en það þarf ekki að þýða, að ekki megi taka hlykk til vestur eða austurs – jafnvel til baka til suðurs – til að finna beztu leiðina norður. Í mínum augum var þetta einfalda prinsipp ríkisstjórnarinnar, að setja ekki skattfé í WOW, út í hött.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins til liðs við kosningateymi Katrínar

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins til liðs við kosningateymi Katrínar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jóhann Páll Jóhannsson á Alþingi: Hákarlar margfalda höfuðstól smálána – veiðileyfi í boði ríkisstjórnarinnar

Jóhann Páll Jóhannsson á Alþingi: Hákarlar margfalda höfuðstól smálána – veiðileyfi í boði ríkisstjórnarinnar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Enginn ágreiningur milli Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks um opinbera þjónustu og skatta

Ólafur Þ. Harðarson: Enginn ágreiningur milli Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks um opinbera þjónustu og skatta