Framkvæmdastjóri Bónuss, Guðmundur Marteinsson, segir við Fréttablaðið í dag að Bónus sé viðkvæmt fyrir þeim verðhækkunum sem ÍsAm hefur boðað, verði kjarasamningar samþykktir, vegna lágrar verðlagningar Bónus verslananna.
Hefur ÍsAm boðað 3,9 % hækkun á vörum fyrirtækja í þeirra eigu, sem eru Myllan, Ora, Kexverksmiðjan Frón og Kexverksmiðjan. Þá muni innfluttar vörur þeirra hækka um tæp tvö prósent, en vörutegundir þeirra skipta þúsundum. Hefur verkalýðsforystan, sem og talsmenn fyrirtækja fordæmt hækkanirnar og íhugar ASÍ að hvetja fólk til að sniðganga vörur ÍsAm, verði hótuninni fylgt eftir.
„Við eigum eftir að sjá þetta gerast. En það er enginn samnefnari fyrir því að þessu sé bara velt út í verðlagið. Við munum spyrna við fótum eins og við mögulega getum. Málið snýst um það að fyrirtæki eins og Bónus, sem leggur lítið á, er viðkvæmt fyrir svona hækkunartilkynningum. Þess vegna hefur maður áhyggjur af þessu,“
segir Guðmundur við Fréttablaðið.
Aðspurður um valkostina við vörur ÍsAm, hvort Bónus selji eitthvað annað í staðinn verði af hækkununum, segir Guðmundur að neytendur hafi alltaf val:
„Bónus er til fyrir neytendur og það eru neytendur sem ráða vöruúrvalinu með kaupum sínum. Þeir greiða atkvæði með buddunni. En auðvitað munum við skoða aðrar leiðir. Hvaða vörur er hægt að bjóða upp á, sambærilegar sem munu ekki hækka og eru á góðu verði. Það skiptir okkur máli að spyrna við fótum og skoða hvað sé hægt að gera til að spara kostnað. Er hægt að stækka pantanir? Er hægt að gera hlutina eitthvað öðruvísi en í dag? Þetta snýst allt um það. Hvernig er hægt að einfalda ferlið og þá reyna að panta meira inn og mýkja þessar hækkanir sem hafa verið boðaðar.“