fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Eyjan

Alvarlegir greiðsluerfiðleikar eftir skyndilán – Nauðsynlegt að grípa til aðgerða

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 25. mars 2019 09:46

Margir lántakendur hafa leitað til Umboðsmanns skuldara vegna smálána.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umsækjendur sem óskuðu aðstoðar Umboðsmanns skuldara (UMS) vegna fjárhagsvanda fjölgaði um 6,5% á árinu 2018 miðað við árið á undan. Alls bárust 1.397 umsóknir til embættisins 2018 á móti 1.311 umsóknum árið 2017. Mest fjölgaði umsækjendum sem voru á aldrinum 18-29 ára, eða úr 23% árið 2017 í 27,3% árið 2018. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umboðsmanni skuldara.

Í tilkynningunni er varpað ljósi á vaxandi vanda hér á landi vegna skyndilána, einkum meðal ungs fólks. Kallað er eftir því að gripið verði til aðgerða til að stemma stigu við vandanum.

„Umboðsmaður skuldara hefur áður vakið athygli á vaxandi fjölda ungs fólks í vanda vegna töku skyndilána en UMS skilgreinir skyndilán sem lán sem tekin eru á vefsíðum eða með smáforritum í gegnum farsíma. Lánin eiga það sameiginlegt að einfalt er að sækja um þau og þau eru afgreidd afar skjótt. Bæði getur verið um að ræða lán sem tekið er samhliða kaupum á vöru eða þjónustu en einnig lán þar sem ákveðin fjárhæð er lögð inn á reikning lántaka. Á árinu 2018 var hlutfall skyndilána 22% af heildar fjárskuldbindingu þessara einstaklinga og er það verulegt áhyggjuefni að enn skuli fjölga í hópi umsækjenda á aldrinum 18-29 ára,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að einstaklingar sem leita sér aðstoðar eigi það sameiginlegt að hafa tekið fjölda skyndilána á stuttum tíma og komið sér í töluverðar skuldir. Markaðssetning skyndilána er öflug og áberandi, að mati UMS, og er beint í miklum mæli að yngri kynslóðinni með áherslu á auðvelt aðgengi. Að mati UMS er mikilvægt að kannað verði hvort hægt sé að setja skorður við því hvernig þessi þjónusta er markaðssett. Bent er á það að í Noregi hafi til dæmis verið settar strangar reglur um hvernig auglýsa megi þjónustu sem þessa.

„Ljóst er að einstaklingar geta auðveldlega tekið mörg lán á stuttum tíma hjá ólíkum þjónustuaðilum og þannig skuldsett sig langt umfram greiðslugetu. Með því að skrá skuldastöðu einstaklinga væri hægt að koma í veg fyrir að sami einstaklingur taki mörg lán hjá ólíkum aðilum með ofangreindum afleiðingum. Með aðgangi að slíkri miðlægri skrá gætu þeir sem veita skyndilán betur metið lánshæfi umsækjenda eins og kveðið er á um í lögum  um neytendalán. Slík skráning myndi auk þessi veita yfirsýn yfir umfang útlána af þessu tagi sem ekki er fyrir hendi í dag.“

Þá segir UMS að dæmin sýni að þeir sem taka skyndilán eru í meiri áhættu að lenda í alvarlegum greiðsluerfiðleikum.

„Tryggja þarf að einstaklingar hafi forsendur til að taka upplýstar ákvarðanir í fjármálum. Með samvinnu mennta- og velferðarkerfis, fjármálafyrirtækja og fleiri aðila þarf að tryggja samræmda fjármálafræðslu barna og ungmenna og það þarf að byrja snemma. Sameiginlegt markmið okkar ætti að vera að koma í veg fyrir að ungt fólk hefji sitt fjárhagslega sjálfstæða líf með neysluskuldir á bakinu.
Síðustu misseri hefur Umboðsmaður skuldara lagt aukna áherslu á fræðslumál og útgáfu fræðsluefnis og einn liður í því er ný vefsíða embættisins sem opnuð verður í dag 25. mars. Á vefsíðunni er auk upplýsinga um þjónustu embættisins að finna ýmsan fróðleik um fjármál einstaklinga.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum