fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Eyjan

Sólveig Anna skammar Friðrik: „Piece of cake“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 15. mars 2019 11:40

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég bið öll agalegs forláts en ég fæ ekki orða bundist á þessum fallega morgni þegar sjálft undursamlegt og blessað vorið er í loftinu og finn mig bókstaflega knúna áfram af einhverri nauðhvöt sem ég einfaldlega verð að láta undan: Það var algjört smámál að lækka launin mín um 300.000 krónur.“

Þetta segir verkalýðsforinginn Sólveig Anna Jónsdóttir og deilir frétt þar sem vitnað er í Friðrik Sophusson fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins og stjórnarformann Íslandsbanka. Friðrik segir í samtali við Fréttablaðið að það hefði verið stórmál og snúið að lækka laun Birnu Einarsdóttur úr 4,4 milljónum á mánuði niður í 3,8 milljónir á mánuði.

Sólveig Anna lækkaði sín laun um 300 þúsund krónur þegar hún tók við embætti formanns Eflingar. Sólveig segir:

„Þið mynduð ekki trúa því hvað það var auðvelt. Ég hugsaði um það í smá tíma og framkvæmdi svo. Bókstaflega svona einfalt.“

Þá segir Sólveig Anna:

„Ég bara varð að koma þessu á framfæri af því að ég vil ekki að Friðrik Sophusson, stjórnarformaður Íslandsbanka og meðlimur pólitískrar og efnahagslegrar yfirstéttar til margra áratuga, komist upp með að halda því fram að launalækkun Birnu Einarsdóttur hafi verið voðalega vandasöm.“

Sólveig Anna segir að lokum:

„Það er aldeilis ekkert erfitt að lækka laun, ég hef prófaði það og veit því af persónulegri reynslu um hvað ég er að tala. Piece of cake og á endanum eiginlega það auðveldasta sem ég hef gert.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að