Í dag bauð borgarstjórn öllum þingmönnum til fundar í Höfða. Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins og þingmanni hans, var þó ekki boðið. Inga var ævareið yfir því að hafa verið sniðgengin. Nú hefur hins vegar komið í ljós skýring á því hvers vegna Inga var skilin eftir út undan en þar var um að ræða mannleg mistök. Eftirfarandi tilkynning hefur borist frá Reykjavíkurborg um málið:
Mannleg mistök urðu til þess að boð á fund borgarstjórnar og þingmanna Reykjavíkur bárust ekki Ingu Sæland formanni Flokks Fólksins og þingmanni Reykjavíkur.
Fundurinn var haldinn í Höfða og var öllum þingmönnum beggja kjördæma Reykjavíkur boðið.
Reykjavíkurborg harmar mistökin sem lýsa sér þannig að við útsendingu boðsins vantaði einn bókstaf í netfang formannsins. Um var að ræða bókstafinn “i” í “althingi”.
Beðist er velvirðingar á mistökunum og var strax haft samband við formanninn og útskýrt hvað gerst hafði áður en fundur hófst og hún jafnframt beðin afsökunar a þessum leiðu mistökum.