Sú ákvörðun íslenskra stjórnvalda að styðja Juan Guaidó, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Venesúela, sem næsta forseta landsins, fer ekki vel í Ögmund Jónasson, fyrrverandi ráðherra VG.
Segir hann það svívirðilegan vesaldóm í pistli á heimasíðu sinni, að Ísland sjái ekki sóma sinn í að halda sér til hlés í þessum valdaskiptum Venesúela, sem Bandaríkjamenn og NATO standi að baki:
„Tilkynnt hefur verið að íslensk stjórnvöld hafi ákveðið að hlýða kalli um að fylkja sér á bak við ákvörðun Bandaríkjastjórnar að hrekja núverandi forseta Venesúela frá völdum og setja mann sér þóknanlegan í hans stað. Sannast sagna hélt ég að afhjúpun ósanninda um valdaskipti og tilraunir til valdaskipta í Írak, Líbíu, Sýrlandi og nú Venesúela, svo nýjustu dæmin séu nefnd, væri nóg til að íslensk stjórnvöld sæju sóma sinn í því að halda sér alla vega til hlés. Í öllum þessum dæmum var gerandinn hinn sami, bandalagsríki Íslands í NATÓ með Bandaríkin í broddi fylkingar. Réttast væri að mótmæla ofbeldinu og ósannindunum en lágmarkskrafa er að gerast ekki svo svívirðilega undirgefin heimsauðvaldinu sem þessi afstaða ríkisstjórnar og Alþingis ber vott um.“
Ástandið í Venesúela er afar slæmt. Á örfáum árum hefur landið, sem var eitt það ríkasta í Suður-Ameríku, breyst í eitt það fátækasta, undir stjórn sósíalistanna Hugo Chávez frá 2002 til 2013 og svo Nicolás Maduro, sem nýtur vaxandi óvinsælda í landinu, en hann varð ekki við þrýstingi frá alþjóðasamfélaginu um að boða til lýðræðislegra kosninga.
Um stuðning sinn við Guaidó sagði Guðlaugur Þór Þórðarsson, utanríkisráðherra, við mbl.is:
„Við erum á sama stað og Norðurlöndin og flest Evrópuríki þegar kemur að því að styðja Guaidó, við þessar aðstæður, sem forseta, þangað til að nýjar lýðræðislegar kosningar verða haldnar.“