fbpx
Þriðjudagur 11.nóvember 2025
Eyjan

Starfsgreinarsambandið fagnar launaskriðstryggingu

Trausti Salvar Kristjánsson
Föstudaginn 16. febrúar 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Snæbjörnsson er formaður SGS

Laun þeirra ríkisstarfsmanna sem eru í aðildarfélögum Starfsgreinasambands Íslands fá nú í fyrsta sinn svokallaða launaskriðstryggingu sem gefur að meðaltali 1,8% hækkun á laun afturvirkt frá 1. janúar 2017. Leiðréttingin kemur til útborgunar á flestum stöðum þann 1. mars. Þetta er gert á grundvelli rammasamkomulags í tengslum við síðustu kjarasamninga til að tryggja að launaskrið á almenna vinnumarkaðnum nýtist líka starfsfólki hjá hinu opinbera.

„Þetta er í fyrsta skipti sem reynir á launaþróunartrygginguna og ég fagna því að leiðréttingin sé nú í hendi og tryggir að fólk í okkar félögum fái hluta launaskriðsins sem er á almenna vinnumarkaðnum. Það hefur oft í gegnum árin verið þannig að fólk innan hins opinbera nýtur ekki launaskriðs í sama mæli og á almenna markaðnum. Því er þetta fagnaðarefni,“

segir Björn Snæbjörnsson formaður Starfsgreinasambandsins.

Tryggingin er mæld út frá launaskriði árin 2013 til 2016 en annað uppgjör verður svo gerð fyrir árin 2017 og 2018 og leiðrétt ef tilefni er til.

Útfærsla tryggingarinnar er misjöfn eftir landssamböndum en ákveðið var að SGS myndi feta sig í átt að nýrri launatöflu líkt og flest opinber félög innleiddu í síðustu kjarasamningum. Því eru allir starfsmenn færðir í 6. þrep launatöflunnar, sem er efsta þrepið og taflan hækkuð öll um 1%. Þetta gerir það að verkum að fólk ber aðeins misjafnt úr býtum eftir aldri og röðun í launatöflu, en launatöflur eru þá ekki háðar lífaldri lengur og því verður auðveldara að breyta töflunni til samræmis við aðra í næstu kjarasamningum. Félagsmenn sem starfa við ræstingar fá 1,8% hækkun á tímamælda og flatamælda ákvæðisvinnu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Reynir Traustason: Ég ætla ekki að berja þig, Sveinn Andri, ég kæri þig til siðanefndar lögmanna

Reynir Traustason: Ég ætla ekki að berja þig, Sveinn Andri, ég kæri þig til siðanefndar lögmanna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nýjar ógnir og nýtt RÚV

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nýjar ógnir og nýtt RÚV
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Mogginn vill leiðrétta mannréttindabrot en bara „hóflega“

Svarthöfði skrifar: Mogginn vill leiðrétta mannréttindabrot en bara „hóflega“