Af öllum löndum heimsins er bjór dýrastur á Íslandi. Samanburðurinn, sem má lesa á vef sem nefnist Mentalfloss, er settur fram á mjög myndrænan hátt. Verðið er mælt í Bandaríkjadölum og miðað við glas sem inniheldur 568 millilítra.
Á Íslandi er glasið næstum tómt. Fyrir jafnvirði eins dollara fást einungis smáskvetta af bjór á Íslandi. Næstdýrastur er bjórinn í Noregi en svo í Sameinuðu arabísku furstadæmunum – það er ríki sem er ekki þekkt fyrir drykkju.
Ódýrasta bjórinn er að finna í Paraguay, Vietnam, Eþíópíu og Úkraínu, samkvæmt þessari athugun.
En við á Íslandi berum okkur fremur saman við lönd í okkar heimshluta. En þarna má sjá að víða í nágrannalöndum má fá næstum tvöfalt meiri bjór fyrir verð eins á Íslandi.