fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Eyjan

Ísland undirritar fjóra loftferðasamninga

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 18. desember 2018 18:00

Benedikt Ásgeirsson sendiherra ásamt fulltrúa Sameinuðu arabísku furstadæmanna Mynd-Utanríkisráðuneytið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýir möguleikar opnuðust fyrir íslenska flugrekendur í síðastliðinni viku á árlegri ráðstefnu Alþjóðaflugmálastofnunarinnar þegar samninganefnd Íslands undirritaði loftferðasamninga við fjögur ríki.

Ráðstefnan var að þessu sinni haldin í Naíróbí í Kenía þar sem fulltrúar sjötíu ríkja komu saman. Samninganefnd Íslands undirritaði fjóra loftferðasamninga, við Búrkína Fasó, Jamaíka, Rúanda og Tyrkland, auk þess sem undirrituð var viljayfirlýsing um loftferðir með Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þá fundaði sendinefndin meðal annars með sendinefnd Bretlands vegna flugmálasamskipta landanna með hliðsjón af útgöngunni úr Evrópusambandinu, Suður-Kóreu vegna loftferðasamnings milli landanna og átti viðræður við sendinefnd Marokkó um gerð loftferðasamnings. Þá átti hún samráðsfund með sendinefnd Noregs.

„Fyrir eyríki eins og Ísland skipta samgöngur í lofti miklu máli enda er flugiðnaðurinn lykilþáttur í íslenskum efnahag. Það er því ávallt fagnaðarefni þegar nýir loftferðasamningar eru gerðir eða eldri samningar uppfærðir vegna þeirra jákvæðu hagrænu áhrifa sem það hefur í för með sér,“

segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.

Ísland hefur gert loftferðasamninga og viljayfirlýsingar sem heimila flug til að minnsta kosti 115 ríkja, en aukin umsvif íslenskra flugrekenda á síðustu árum hafa kallað sérstaklega á gerð loftferðasamninga. Þótt samningarnir veiti misjafnlega víðtæk réttindi er að jafnaði um að ræða gagnkvæma heimild til farþega- og farmflugs milli samningsríkja.

Íslensku sendinefndina skipuðu tveir sendiherrar Íslands, Benedikt Ásgeirsson og Unnur Orradóttir Ramette.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að