Strætó BS hafnar því alfarið að brjóta á réttindum starfsmanna sinna og vill Jóhannes S. Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó BS, fá Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, borgarfulltrúa Sósíalistaflokksins, í heimsókn til að kynna sér starfsemi fyrirtækisins. Sanna gagnrýndi fyrirtækið, sem er í eigu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, harðlega og sagði það brjóta á réttindum starfsmanna sem kæmu hingað til lands á vegum starfsmannaleiga.
Sanna vísaði í launaseðil manns sem starfaði sem bifreiðastjóri hjá Strætó þar sem 70 þúsund krónur eru teknar af laununum í leigu á herbergi sem hann deildi með öðrum. DV hefur fjallað ítarlega um stöðu erlendra starfsmanna sem eru ráðnir í gengum starfsmannaleigur og er gert að greiða stóran hluta launa sinna í leigu á húsnæði sem þeir deila með öðrum.
Sjá einnig: Sanna segir Strætó stunda brotastarfsemi
Sjá einnig: Erlendir starfsmenn borga 75 þúsund krónur fyrir að deila 10 fm. herbergi
Strætó BS hafnar því með öllu að brotið sé á réttindum og kjörum starfsmanna sinna. Í starfsauglýsingu og í samning á milli starfsmannanna og Elju sé tekið fram að húsaleiga, flugmiði og rútuferð frá flugvelli verði dregin frá launum starfsmanns. Strætó segir að „slíkur frádráttur vegna húsaleigu er ekki sú leið sem fyrirtækið myndi almennt kjósa að fara.“
Segir í yfirlýsingunni að aukin tíðni aksturs hafi krafist 50 nýrra stöðugilda, einungis hafi tekist að manna 20 stöður með hefðbundnum leiðum og því hafi verið leitað til Elju starfsmannaleigu.
„Starfsmennirnir sem komu í gegnum Elju í sumar voru með laun samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar og Strætó bs, eins og allir aðrir starfsmenn Strætó,“ segir í yfirlýsingunni. Er það tekið fram sérstaklega að engin húsleiga sé tekin af starfsmönnum í dag.