fbpx
Miðvikudagur 01.maí 2024
Eyjan

Björt Ólafs: „Argasta hræsni að vinna við það að setja öðrum lög en fara bara eftir þeim eftir eigin hentugleika“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 10. október 2018 09:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björt Ólafsdóttir, fyrrum umhverfisráðherra, fjallar um laxeldismálið í pistli í Fréttablaðinu í dag. Hún segir ráðlegt að þeir sem fjalli opinberlega um málið lesi úrskurð úrskurðarnefndar um ógildingu starfsleyfis tveggja fyrirtækja á Vestfjörðum og færu rétt með.

Þá gagnrýnir hún stjórnmálamenn fyrir hræsni þegar kemur að umhverfismálum:

„Hitt er svo dugleysið í stjórnmálamönnunum sem tala um vernd lífríkis og náttúru á tyllidögum. Það er sorglegt og dýrkeypt fyrir landsmenn hvað veður skipast hér alltaf fljótt í lofti og það er auðvitað argasta hræsni að vinna við það að setja öðrum lög en fara bara eftir þeim eftir eigin hentugleika líkt og nú á að gera,“

segir Björt og fullyrðir að viðskiptamódelið í fiskeldinu sé bull:

„Hvar eru þeir í pólitík sem eiga enn einhvern snefil af sannfæringu og hugsjón fyrir því meginstefi í náttúruvernd sem og verndun fjölbreytileika lífríkis að verndunin sjálf í eðli sínu sé það mikilvæga? Ekki fyrir peninga hvort sem það séu vasar Norðmanna eða veiðiréttarhafar laxveiðiáa. Heldur út af því að við sem erum hér í stutta stund höfum ekkert leyfi til þess að skemma hana til frambúðar. Þessi rök um ábyrgð kynslóðanna hafa reyndar þegar á reynir ekki fleytt náttúruverndinni langt á þessum síðustu tímum ólíkt því þegar Sigríður í Brattholti barðist fyrir verndun Gullfoss. En þá eru líka hæg heimatökin að benda á bullið í viðskiptamódelinu fyrir íslenska skattgreiðendur sem verða af tugum milljarða sem þeir norsku fá fyrir leyfin og þau takmörkuðu gæði sem firðirnir eru.“

Skilur reiði Vestfirðinga

Björt segir að störfin í laxeldinu verði aldrei mörg til frambúðar:

„Lærum einhvern tímann af fortíðinni. Fyrir nokkrum árum þótti stjórnmálamönnum Vinstri grænna olíuleit og kísilmálmver góðar og grænar hugmyndir ekki síst til þess að styðja við byggð í landinu. Hættum að láta eins og við vitum ekki að opið sjókvíaeldi sé mengandi. Og hættum að láta eins og störfin þar verði mörg til frambúðar mitt í því að stjórnmálamenn tala sig hása um fjórðu iðnbyltinguna og sjálfvirknivæðingu starfa sem verða þar auðvitað eins og í öðrum sjávarútvegi.

Ég skil vel reiði Vestfirðinga sem hafa setið eftir. Pólitíkusar hafa ekki sinnt því að skapa almenn skilyrði til þess að fjölbreytt samfélag megi þar dafna. Það er gert með hringtengingu rafmagns, vegöngum og styrkingu vegakerfis og ljósleiðara. Þetta er hlutverk stjórnmálanna. Ef ráðamenn samtímans hafa ekki þá sýn að bjóða fólkinu í landinu hvort sem það býr á landsbyggðinni eða í borg að fá að búa heima hjá sér og hafa nóg að starfa án þess í leiðinni að eyðileggja lífríki og náttúru, þá á það fólk í stjórnmálunum að finna sér eitthvað annað að gera.“

Staðreyndir málsins

Björt fer yfir úrskurð úrskurðarnefndarinnar sem setti allt í loft upp og varð til þess að stjórnvöld ætla að breyta lögunum í þessum málaflokki:

„Forsendur fyrir niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar eru afar yfirgripsmiklar og lesturinn sláandi. Í fréttum hefur komið fram sú að því er hefur virst eina ástæða ógildinganna, að stofnanir umhverfisráðuneytisins hafi ekki með nægjanlegum hætti fjallað um aðra kosti í sinni málsmeðferð en laxeldi í sjó, og þar með ekki farið að lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Það eitt og sér er auðvitað ámælisvert, og brýtur gegn lögum, en er þó fjarri því eina ástæðan sem tilgreind er fyrir synjun leyfanna.

Fyrir það fyrsta rekur nefndin hvernig meiriháttar annmarkar hafi verið á allri málsmeðferð hvað varðar laxeldi í sjó af hendi íslenskra stjórnvalda í áraraðir. Samkvæmt 2. málslið 40. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands geta stjórnvöld ekki afhent eignar- eða afnotarétt að hafsvæði við landið sé ekki fyrir hendi sérstök lagaheimild til hinnar tilteknu ráðstöfunar hafsvæðisins. Hún sé ekki til staðar og þannig brjóti leyfisveitingarnar almennt gegn stjórnarskránni.

Í öðru lagi tiltekur nefndin að Umhverfisstofnun hafi ekki tekið afstöðu eins og henni bar lögum samkvæmt til fyrirliggjandi mats á hættu á erfðamengun villtra laxa vegna laxeldis, mengunar í fjörðum (sem í þessu tilfelli er á við óhreinsað skolp frá 110 þúsund manna byggð að því er fram kemur í matsgögnum) og sjúkdóma í eldisfiski á við laxalús.

Í þriðja lagi en ekki í síðasta lagi fjallar nefndin um þá staðreynd sem sé einnig ein og sér óhjákvæmilega umsvifalaus ógilding starfsleyfa, að fjarlægð á milli eldissvæða ótengdra aðila í þessum máli er ekki samkvæmt reglugerðum. Þetta eru staðreyndir málsins er varða dóm úrskurðarnefndar umhverfis og auðlindamála.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Björn Jón skrifar: Forsetaefni íhaldsmanna?

Björn Jón skrifar: Forsetaefni íhaldsmanna?
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Snorri Jakobsson: Seðlabankinn eins og hundur sem eltir skottið á sér

Snorri Jakobsson: Seðlabankinn eins og hundur sem eltir skottið á sér
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Jarðarfararblús

Óttar Guðmundsson skrifar: Jarðarfararblús
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?