Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, segir í grein í Morgunblaðinu í dag að hún hyggist kalla eftir upplýsingum um hvernig málum er varða einangrunarvist er háttað hér á landi. Segir hún mikilvægt að draga lærdóm af Guðmundar- og Geirfinnsmálinu:
„Engum dylst að sakborningar sættu harðræði í margvíslegri mynd. Þó vissulega megi áfram fjalla um þetta mál frá mörgum sjónarhornum réttarsögunnar, og það verður trúlega gert um ókomna tíð, þá skiptir að mínu mati miklu að horfa einnig til framtíðar enda má margt læra af þessu máli,“
segir Sigríður og tekur fram að brýnt sé að saklausir menn, sem ekki hafi hlotið dóm, séu ekki látnir sæta einangrunarvist í langan tíma.
„Ég hef í þessu skyni þegar kallað eftir upplýsingum um það hvernig þessum málum er háttað í okkar réttarvörslukerfi í dag. Hversu algengt það er að lögreglan fari fram á dómsúrskurð um einangrunarvist, á hvaða forsendum það sé þá gert og hversu algengt það sé að því sé hafnað af dómstólum. Einnig hef ég óskað eftir upplýsingum um það hversu oft ríkið hefur samið um skaðabætur vegna einangrunarvistunar við rannsókn máls. Þetta er viðamikil upplýsingaöflun en nauðsynleg til að hægt sé að leggja mat á það hvort nauðsynlegt sé að skýra enn frekar lög eða reglur að þessu leyti.“