Hjúkrunarfræðingar hafa fengið nóg af launaójöfnuði og kalla eftir pólitískum viðbrögðum til að takast á við ósanngjarnan launamun í störfum sem krefjast sambærilegrar menntunar.
Þetta kemur fram í sérstakri yfirlýsingu frá stjórn Samtaka hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndunum en norrænir hjúkrunarfræðingar funda í Reykjavík á miðvikudag og fimmtudag þar sem launaójöfnuðurinn er meginþemað.
Í yfirlýsingu samtakanna, sem í eru hjúkrunarfræðingar frá öllum Norðurlöndunum sex, segir að könnun á launakjörum leiði í ljós að launamunur karla og kvenna sé umtalsverður og konur í hefðbundnum kvennagreinum, svo sem hjúkrun, séu með um 80% af launum í karlagreinum með svipað menntunarstig. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.
„Staðan hér á landi er ekkert skárri og raunar er það þannig að aðeins 61% launa íslenskra hjúkrunarfræðinga er föst laun meðan afgangurinn kemur í formi yfirvinnulauna. Slíkt yfirvinnuhlutfall þekkist ekki á hinum Norðurlöndunum, þar sem vinnuvikan er styttri að auki,“ segir Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Í yfirlýsingu hjúkrunarfræðinga segir enn fremur að þróun heilbrigðismála á þessari öld muni hafa í för með sér að vægi hjúkrunarstarfa eigi eftir að aukst og því sé skortur á hjúkrunarfræðingum alvarleg staðreynd. Ójöfn laun hafi verið á dagskrá stofnfundar Samtaka hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndunum árið 1920. 98 árum síðar sé það enn á dagskrá og stjórnmálamenn eigi að sýna dug sinn í að takast á við ójöfnuðinn og veita hjúkrunarfræðingum þau laun og þá virðingu sem þeir eigi skilið.