Ferðaþjónustuvefurinn AirHelp birti fyrr í sumar úttekt á könnun yfir bestu og verstu flugvelli heims fyrir árið 2018 og trónir Keflavíkurflugvöllur þar í sautjánda sæti seinni flokknum. Í könnuninni er hver flugvöllur metinn út frá stundvísi flugáætlana, almennum rekstri, þjónustu starfsfólks og umsögnum almennings á samfélagsmiðlum.
„Fólk segir að flugvöllurinn sé snyrtilegur og nútímalegur, en hann sé fulllítill til þess að þjóna þeim fjölda farþega sem á leið þarna í gegn,“ segir meðal annars í umsögn sem birt var á vefnum Far and Wide þar sem vísað er í könnunina og var ekki skortur á kvörtunum í garð Leifsstöðvar á veraldarvefnum.
„Þetta er hrein martröð. Uppbygging og skipulag nær ekki með neinu móti að halda í við streymi ferðamanna,“ segir í annarri umsögn. „Starfsfólkið reynir að halda utan um allt en fólksfjöldinn er alveg yfirþyrmandi.“
Í samantektinni standa gæði þjónustunnar yfir meðallagi með 7,0 í einkunn, en ánægja viðskiptavina dregur meðaleinkunnina niður, með 4,7 í einkunn. Meðaleinkunn Keflavíkurflugvallar er 6,61 af 10.
Þess má geta að sumarið 2016 var Keflavíkurflugvöllur talinn besti flugvöllur Evrópu með færri farþega en fimm milljónir. Verðlaunin voru veitt af alþjóðasamtökum flugvalla í Evrópu (ACI Europe) þar sem meðal annars er metin uppbygging á mannvirkjum, umgjörð verslunar- og veitingasvæða, öryggisleit, samfélags- og umhverfismál, rekstur flugbrauta, flugumferðarstjórn og fjöldi áfangastaða sem í boði eru.
Í botnsæti listans í könnun AirHelp er flugvöllurinn í Kúveit, en hann er talinn vera sá allra versti, með 5,40 í meðaleinkunn samkvæmt könnuninni. Flugvellinum er blótað í hvívetna í umsögnum farþega vegna ófaglegrar framkomu starfsfólks, reglulegra seinkana og ósnyrtilegs umhverfis.
Flugvellirnir í könnuninni eru 141 talsins en alþjóðlegir flugvellir á heimsvísu eru í kringum 1300 talsins. Á listanum yfir bestu flugvellina stóð alþjóðlegi flugvöllurinn Hamad í Katar uppi sem sigurvegari samkvæmt mælingunum.
Heildarlistann má finna hér.