Það standa fyrir dyrum afdrifaríkar kosningar í Svíþjóð. Flokkur Svíþjóðardemókrata sem á rætur sínar í ný-nasisma er á mikilli siglingu, spáð 20 prósentum atkvæða, en reyndar ber skoðanakönnunum ekki sérlega vel saman – flokkurinn gæti fengið ennþá meira fylgi. Það gæti jafnvel farið svo að hann yrði stærsti flokkur landsins.
Eins og víðar tröllríða innflytjendamálin stjórnmálunum í Svíþjóð – efnahagslega er allt þar í miklum blóma og velmegunin aldrei meiri en útlendingamál hafa lagst á þjóðarsálina.
Það er athyglisvert að skoða muninn á viðhorfum karla og kvenna. Svíþjóðardemókratar njóta miklu meira fylgis meðal karla og en kvenna – en mest er það meðal karla í dreifbýli. Myndin hér fyrir ofan birtist á vef sænska sjónvarpsins.
Þetta er byggt á svokallaðri kjósendaloftvog, Väljarbarometern, tölurnar eru frá því fyrr í sumar. Eins og sjá má á myndinni hér að ofan hafa Svíþjóðardemókratar 29,5 prósenta fylgi meðal karla en einungis 15,1 meðal kvenna. Konur eru hins vegar ívið fleiri í kjósendahópi Sósíaldemókrata, Miðflokksins og áberandi fleiri í Umhverfisflokknum – Miljöpartiet.
Þetta er sama tilhneiging og víðar í stjórnmálunum. Í Bandaríkjunum sýna skoðanakannanir gríðarlegan mun á viðhorfum karla og kvenna. Í nýlegri könnun sem birtist í Washington Post kemur fram að 65 prósent kvenna hefur neikvætt álit á Donald Trump en 54 prósent karla hafa jákvæðar skoðanir í hans garð. Konur virðast almennt vera miklu síður hallar undir öfgafulla hægristefnu.