Tómas Guðbjartsson, prófessor við Háskóla Íslands og yfirlæknir á Landsspítalanum, hefur verið úrskurðaður ábyrgur fyrir vísindalegu misferli vegna plastbarkamálsins, ásamt sex öðrum, af rektor Karólínska háskólasjúkrahússins í Svíþjóð. Mbl.is greinir frá.
Úrskurður rektors var birtur á heimasíðu sjúkrahússins í dag. Rannsakaðar voru sex vísindagreinar sem sjömenningarnir komu að, en það var læknirinn Paolo Macchiarini sem leiddi þróunina fyrir plastbarkaígræðslunni.
Samkvæmt niðurstöðu voru alvarlegir ágallar í þeim upplýsingum sem lagðar voru fram í vísindagreinum læknanna, þar sem þær innihaldi falsaðar og brenglaðar lýsingar á ástandi sjúklinga fyrir og eftir plastbarkaaðgerðirnar. Þá eru aðgerðirnar sagðar skorta læknisfræðilegan rökstuðning og gerðar siðferðislegar athugasemdir við að ekki hafi legið fyrir samþykki sjúklings.
Í byrjun apríl sagði rektor Háskóla Íslands að vinnubrögð Tómasar væru aðfinnsluverðar, samkvæmt niðurstöðu skýrslu óháðrar rannsóknarnefndar. Hinsvegar var ekki talið að lagaskilyrði væru fyrir hendi til þess að beita formlegum viðurlögum vegna brota í starfi á grundvelli laga nr70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Í tilkynningu HÍ sagði meðal annars:
„Það er afstaða rektors að fallast beri á þá niðurstöðu í skýrslu óháðu rannsóknarnefndarinnar að vinnubrögð prófessorsins sem tengjast birtingu nefndrar vísindagreinar hafi verið aðfinnsluverð. Er þá einkum litið til þess að hann skyldi ekki hafna þátttöku í frekari skrifum greinarinnar og draga nafn sitt til baka af lista meðhöfunda um leið og honum urðu ljósir annmarkar á efni hennar.“
Þar er einnig fundið Tómasi ýmislegt til málsbóta:
„Hann reyndi árangurslaust að koma lýsingum í vísindagreininni á bata sjúklings í ásættanlegt horf, hann hefur óskað eftir því að fá nafn sitt dregið til baka af lista höfunda umræddrar vísindagreinar og hann átti umtalsverðan þátt í því að varpa ljósi á plastbarkamálið með framlagningu umfangsmikilla gagna og útskýringa.“