fbpx
Laugardagur 04.maí 2024
Eyjan

Svandís um nýjan spítala: „Mikilvægt að horfa á heildarmynd þessa risavaxna verkefnis“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 24. apríl 2018 15:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað samstarfsráð til að styrkja samvinnu aðila um uppbyggingu Landspítalans og efla samráð og miðlun upplýsinga þannig að áætlanagerð, framkvæmdir og forgangsröðun taki sem best mið af áherslum þeirra sem tengjast verkefninu.

Samstarfsráðið mun starfa á vegum velferðarráðuneytisins og vera heilbrigðisráðherra til samráðs og ráðgjafar meðan á uppbyggingunni stendur, auk þess sem því er ætlað að auka og efla yfirsýn ráðuneytisins með verkefninu í heild á framkvæmdatímanum.

Heilbrigðisráðherra kynnti skipun ráðsins á fundi ríkisstjórnarinnar í dag. Í minnisblaði ráðherra til ríkisstjórnarinnar er bent á að margar stórar ákvarðanir séu framundan vegna uppbyggingarinnar á lóðinni við Hringbraut, en ekki einungis vegna nýframkvæmda, heldur einnig vegna ráðstöfunar og nýtingar á þeim byggingum sem fyrir eru, vegna starfsemi spítalans meðan á framkvæmdum stendur og vegna flutnings starfseminnar eftir því sem framkvæmdunum vindur fram.

„Með samstarfsráði eins og þessu gefst tækifæri til að leiða saman sjónarmið, draga fram nýjar hugmyndir að lausnum á  ýmsum viðfangsefnum og tryggja betri skilning aðila á verkefnunum framundan og síðan jafnharðan á  framkvæmdatímanum. Það er mikilvægt að horfa á heildarmynd þessa risavaxna verkefnis á öllum stigum, allt til enda og samstarfsráðið mun þar gegna mikilvægu hlutverki.“

segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. Hún bendir einnig á hvernig rannsóknir, vísindi og kennsla séu samofin starfsemi Landspítalans og aðkoma háskólasamfélagsins að uppbyggingunni sé því mikilvæg.

Samstarfsráðið hefur breiða samsetningu og er meðal annars ætlað að vakta ákveðið jafnvægi milli aðila á uppbyggingartímanum. Samstarfsráðið tekur ekki yfir ábyrgð á ákvörðunum í verkefninu sbr. lög nr. 64/2010 um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut, lög nr. 84/2001 um skipan opinberra framkvæmda og fjárlög hverju sinni.

Anna Lilja Gunnarsdóttir, ráðuneytisstjóri velferðarráðuneytisins fer með formennsku í ráðinu. Aðrir fulltrúar eru Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins og Erling Ásgeirsson, formaður stjórnar Nýs Landspítala ohf. Starfsmaður samstarfsráðsins er Dagný Brynjólfsdóttir, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu.

Gert er ráð fyrir að ráðið fundi alla jafna ársfjórðungslega eða eins oft og þurfa þykir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Snorri Jakobsson: Fjárfestar hafa flutt sig af hlutabréfamarkaði yfir á fasteigna- og lóðamarkað

Snorri Jakobsson: Fjárfestar hafa flutt sig af hlutabréfamarkaði yfir á fasteigna- og lóðamarkað
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Baldur um viðtalið umdeilda: „Ef ég hefði sagt eitthvað annað, þá hefði ég sagt ósatt“

Baldur um viðtalið umdeilda: „Ef ég hefði sagt eitthvað annað, þá hefði ég sagt ósatt“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Flestir kjósa til vinstri, líka hægrimenn

Sigmundur Ernir skrifar: Flestir kjósa til vinstri, líka hægrimenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Katrín græðir tæpast á tengslum við handlangara Bjarna Ben

Orðið á götunni: Katrín græðir tæpast á tengslum við handlangara Bjarna Ben