fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Eyjan

Anna Lísa kosningastjóri Vinstri grænna í Reykjavík

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 23. apríl 2018 17:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Anna Lísa Björnsdóttir hef­ur hafið störf sem kosningastjóri Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykja­vík fyr­ir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arn­ar í vor. Þetta kemur fram í tilkynningu frá VG. Anna Lísa, sem annars stjórnar skrifstofu og samskiptamiðlum fyrir VG,  fær tímabundið leyfi frá störfum sínum þar fram yfir kosningarnar.

Anna Lísa hefur unnið fyrir bókaútgáfu hérlendis sem og erlendis undanfarin ár og sem skipuleggjandi fyrir BBC á Íslandi.

Anna Lísa er ein af stofnendum Gleym-mér-ei styrktarfélags, auk þess sem hún sat í stjórn Hlaðvarpans og stýrði ritnefnd á vegum Styrktarfélagsins LÍF um bæklinga um missi á meðgöngu.

Anna Lísa hefur verið félagi í VG frá stofnun hreyfingarinnar.

Kosningastjóri og kosningastjórn VG í Reykjavík hafa aðsetur að Þingholtsstræti 27.  Nánari upplýsingar annalisa@vg.is

 

 Vinstri græn bjóða fram V lista í tíu sveitarfélögum í vor og taka auk þess þátt í blönduðum framboðum víða um land.  Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm, starfar sem miðlægur kosningastjóri og aðstoðar VG framboð víða um land, sem ekki hafa tök á að ráða sér miðlægan kosningastjóra, eins og Reykjavík og fleiri stór sveitarfélög. En kosningastjórar hafa verið ráðnir í Kópavogi, Hafnarfirði, Borgarbyggð og á Akureyri. Upplýsingar má finna á kosningaheimasíðu VG. http://x18.vg.is/starfsfolk/

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum