fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
Eyjan

Borgarstjórnin freistar ekki

Egill Helgason
Mánudaginn 8. janúar 2018 08:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Unnur Brá segist ekki ætla í framboð í borginni, ekki Borgar Þór, ekki Ásdís Halla og ekki heldur Páll Magnússon. Þetta er fólkið sem hefur verið orðað við framboð síðasta misserið og er þá ekki eftir nema Eyþór Arnalds af þeim sem hafa verið nefndir – jú, og síðustu vikuna hefur heyrst nafn Jóns Karls Ólafssonar. Hann er ekki sérlega þekktur, hefur lengstum unnið við flugmál.

Fyrir utan borgarfulltrúana Áslaugu Friðriksdóttur og Kjartan Magnússon sem ætla að fara í leiðtogaprófkjörið. Undan þeim er stanslaust grafið með leitinni að frambjóðendum út um allan bæ – nei, reyndar út um allt land. Tilfinningin er sú að flokkurinn treysti þeim alls ekki.

Prófkjörið fer fram 27. janúar svo ekki er langur tími til stefnu. En það virðist einfaldlega vera svo að seta í borgarstjórn í Reykjavík þyki ekki sérlega freistandi kostur.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt