fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Eyjan

Úrsagnir úr VG óverulegar eftir tíðindi dagsins

Trausti Salvar Kristjánsson
Mánudaginn 13. nóvember 2017 19:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdarstjóri VG

Svo virðist sem að nokkrir flokksbundnir stuðningsmenn Vinstri grænna hafi skráð sig úr flokknum, í mótmælaskyni við ákvörðun þingflokks VG um að hefja stjórnarmyndunarviðræður við Sjálfstæðisflokkinn í dag.

Samtals um þrjátíu manns hafa sagt sig úr flokknum um helgina og í dag, samkvæmt  framkvæmdarstjóra flokksins, Björgu Evu Erlendsdóttur, en þetta kemur fram á Vísi. Hún segir um sex þúsund manns skráða í flokkinn og því sé þetta ekki stórt hlutfall fólks sem hafi skráð sig úr flokknum.

„Svo er alltaf einhver hreyfing, en þessi er meiri en venjulega. Svo eru þeir sem hringja með þjósti og segja sig úr en eru alls ekki skráðir.“

Mikillar óánægju gætir meðal margra stuðningsmanna VG við þeim tíðindum að flokkurinn vilji fara í stjórnarviðræður við Sjálfstæðisflokkinn. Þetta sést best á samfélagsmiðlum, þar sem margir lýsa vanþóknun sinni með gang mála. Þar er þingmönnunum Andrési Inga Jónssyni og Rósu Björk Brynjólfsdóttur hampað, en þau  kusu gegn því að hefja viðræður við Sjálfstæðisflokkinn á þingflokksfundinum í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Að lifa í skugga sjaldgæfs sjúkdóms

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Að lifa í skugga sjaldgæfs sjúkdóms
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Lottópeningarnir skipta sköpum

Willum Þór Þórsson: Lottópeningarnir skipta sköpum
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Mesti heiður sem mér hefur hlotnast er að verða heiðursfélagi í Val

Grímur Sæmundsen: Mesti heiður sem mér hefur hlotnast er að verða heiðursfélagi í Val
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna